Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 35
Tímabil tötraborgaranna manna erlendis, jafnvel þeir, sem fara héðan hvað heittrúaðastir á „sjálf- stæðisstefnuna“ turnast fljótlega til andstöðu við „hugsjónir“ flokksins þeg- ar þeir kynnast nokkurnveginn siðaðri blaðamennsku erlendis og skár siðaðri borgarastétt. Borgarastétt sem réttlætir ekki tilveru sína með því sem að réttu heitir þýlund við erlenda hagsmuni og hefur skárri leiðbeinendur í andlegum efnum en Morgunblaðið og Time, en það síðarnefnda er nokkuð lesið af þeim, sem bezt vit þykjast hafa á stjórnmálum innlendum og erlend- um. Það er ömurleg staðreynd, að svo virðist sem íslenzkir stj ómmálamenn hafi einkum aflað sér upplýsinga um alþjóðamál í Time á tólf ára tímabili „viðreisnarinnar“, því var náttúrlega ekki að búast við merkilegum ályktun- um, raunsæi eða víðsýni frá slíkum, ekki sízt þegar heimanfylgj an var oft heimóttarháttur og forpokun. Þrátt fyrir alla menningarviðleitni Sjálfstæðisflokksins og útihúa hans er árangur þeirra skálda og rithöfunda, sem gerzt hafa málaliðar í menningar- baráttu flokksins harla rýr. Sumir þeirra hafa gengið svo langt í þjónustu sinni við húsbændur íslenzkra tötraborgara að yrkja einhverskonar afsökun- arkvæði um frægan bandarískan fjöldamorðingja, sem stundaði vinnu í Víet- nam, aðrir yrkja lofkvæði um hernám Breta hér á landi og afleiðingar þess eða poppsálma, sem „jesúdýrin“ fá að hljóða með leyfi þeirra klerka, sem gera minnstan greinarmun á „sj álfstæðisstefnunni“ og réttri kristilegri kenn- ingu, en hún hlýtur alltaf að stangast algjörlega á við gróðahugsjón og frumskógamóral „sj álfstæðisstefnunnar“. Margir þjónar íslenzku þjóðkirkjunnar virðast álíta að „Sj álfstæðisflokk- urinn“ sé stoð og stytta kirkjunnar og Morgunblaðið helzti málsvarinn, en sá stuðningur nær til þess að styðj a kristindóm og kirkj u svo lengi, sem hann og hún verða ekki ásteytingarsteinn gróðahyggju flokksins. Samkvæmt kenn- ingum Sj álfstæðisflokksins, ber kirkjimni að vera þjónusta hans, og sem slík, á hún að slæva og útfletja kristilegar kenningar og sætta Guð og Mammon, það er kristindómur Billy Grahams, sem Morgunblaðið flytur landsmönnum. Það er hæfileg kristni fyrir tötraborgarana og er þeim enginn fjötur um fót í sinni iðju. Meðan íslenzka þjóðkirkjan hallar sér að og leitar stuðnings hjá Sjálfstæðisflokknum þá fjarar stöðugt áhrifamáttur hennar og er illt til þess að vita ef elzta stofnun þjóðarinnar verður einhverskonar útibú þess tötralýðs. Ýms merki benda því miður til þessa og þess einnig að áhrif stöðl- unar smáborgaranna gæti talsvert meðal klerkdómsins. Þetta kom átakanlega í ljós nú um jólin s. 1. Meðan sprengju- og eiturregn Bandaríkjamanna dundi 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.