Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 66
Tímarit Máls og menningar 63 Nú hef ég sjálfur verið sjúklingur á Kleppi. Það var verið að rannsaka tauga- kerfið í mér, því það er mér óskilj anlegt, hve mér hefur liðið illa svo óskup langan tíma. Óhæfur með öllu til starfa og stöðugt ringl og verkur í hausn- um nema þegar ég ligg útaf. - Ég get lesið og hugsað mér til afþreyingar, en strax og ég stíg í fæturna yfirþyrma mig óþægindin. Að sitja á stóli og púnkta þetta niður á ritvélina mina er mér lengst af kvalræði svo allt skrifið vill gjarna fara í göndul. Og þó skrifa ég. Ég veit það er allt saman ómerki- legt og þó skrifa ég. Hvers vegna er ég að þessu skrifi? Ég veit það ekki. - Og þó skrifa ég. Jæja, fari það allt saman í kolsvart myrkrið. Bráðum er ég dauður, týndur og gleymdur, og þó skrifa ég. Þetta er eins og geðveikur maður sé að tala. Það var mjög ánægjulegt að vera sjúklingur á Kleppi. Ég var hafður á rólegri deild, af því ég nennti hvorki að öskra eða slást og hafði enda ekki heilsu til þessháttar skemmtanalífs. Allt hjúkrunarfólkið var mjög elskulegt og mikið betra en þegar ég var þar hjúkrunarmaður sjálfur. Raunar var ég ekki nema gervihjúkrunarmaður, en var titlaður sem slíkur í fullri alvöru. Hún doktor Hólmfríður er þannig í sniðum, að hefði hún verið strákur þegar ég var unglingur, þá mundum við hafa orðið óaðskiljanlegir vinir. En mér leyfðist ekki langur tími til að vera ómagi á þessum prýðilega stað. Því var nú skollans ver. Þó gafst mér tóm til að flatmaga í sólskini garðsins alla þá daga sem dvöl mín treindist og horfa á þrastahjón sem áttu sér eggjakörfu í greinum eins trésins, það var ómetanlega fagnaðarríkt. Og sjúklingarnir lágu hérna mér til samlætis og mér þótti ég vera kominn heim. Ég hló að sjálfum mér og fannst það mjög skemmtilegt að vera orðinn einn af þeim. En þrestirnir yfirgáfu hreiðrið sitt. Það var mjög sorglegt. Ætli þeir hafi þolað hljómlistina okkar? 64 í dag hentu mig tvö skemmtileg atvik: Jón Helgason rithöftmdur kom heim til mín og færði mér tvö þúsund kr. ávísun fyrir smákvæði sem innan skamms birtast í Tímalesbókinni hans. - Og svo lauk ég við að lesa Sumar í Selavík, skáldsögu eftir Kristmann Guðmundsson. — Þetta er mjög hugþekk saga um ástina. Hvað annað? Kristmann skrifar ógjarna um annað en ástir ungs fólks. Og þó þessi saga hans eigi fremur skylt við huldufólk en okkar ágæta barbarisma, sem við köllum mannlíf, þá er hún svo fersk og kunnáttusamlega 56
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.