Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 119

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 119
er hann líka skáld, þótt þýðingin dragi mjög úr þeirri mynd. Einsog áður er tekið fram líkar mér ekki við fyrstu kaflana en þeim mun betur við þá síðari. Þessi bók markar á ýmsan hátt nýjan þátt í þróun Panduros, áhugaverðan þátt hefði einhver sagt. IV. Satt best að segja er þýðíngin ílla gerð. Flest má finna henni til foráttu. Eg hef ekki tíma eða þolinmæði tilað nöldra - en vilji Iðunn verða dæmigert fyrirmyndarforlag þá verður Skarphéðinn Pétursson að vanda betur verk sitt. Hér hefur verið kastað til höndunum. 1. maí 1973 Ólajur Haukur Símonarson. ÞRJÚ RIT UM ÍSLENZKA NÚTÍ MASÖGU „Styrkur af afli auðs, hákarls“, er cin kaflafyrirsögnin í hinu ágæta riti Amórs Sigurjónssonar um Einar í Nesi. Tilvitn- unin er tekin úr bréfi prestsins í Laufási til vinar síns, burtflutts. Um það leyti sem bréfið var skrifað var sá maður, sem há- karlsaflinn hafði eflt til umsvifa á sviði kaupskapar og framkvæmda, að vinna að því að Alþingishús yrði reist í höfuðstað landsins. Saga Tryggva Gunnarssonar er saga íslenzks athafnalífs öðrum þræði, hann kemur svo víða við, þar sem fram- kvæmdir voru hafnar í hinu kyrrstæða bændasamfélagi síðari hluta 19. aldar liér á landi. Þær breytingar sem urðu, voru smávægilegar miðað við það sem síðar varð, en þó nógu miklar til þess að verða kveikja og undirstaða að almennri sjálf- stæðisbaráttu, sem leiddi til heimastjómar. í fyrri bindum Ævisögu Tryggva Gunnars- Umsagnir um bœkur sonar er rakin saga hans sem bónda og kaupstjóra en í hinu þriðja er höfuð- verkefni höfundar stjómmálaferill hans fram á níunda tug aldarinnar.1 Þetta er mjög ítarleg ævisaga, vönduð og vel skrif- uð. Höfundurinn fjallar hér um ýmis mál, sem lítt hafa verið höfð á oddi. Hann rek- ur forsendur pólitískra deilna erlendis, stefnu dönsku stjómarinnar varðandi vam- armálin, en þau vom mál málanna í her- búðum hægri manna í Danmörku Estmps. Víggirðing Kaupmannahafnar var hjartans mál Estmps og félaga hans ásamt eflingu danska hersins. Þetta kostaði mikið fé og öll andstaða við þær fyrirætlanir var talin þjóðhættuleg. Viðkvæðið var, Dan- mörk má ekki vera vamarlaust land, það má ekki skapa tómarúm, það býður árásar- aðilum heim. Stórveldisfortíð Danmerkur og stórveldisdraumar kotríkisins við Eyrar- sund gerði hægrisinnaða danska stjóm- málamenn enn harðari í andstöðu sinni við kröfur íslendinga um aukið sjálfræði. Höfundur rekur mjög nákvæmlega stjórn- málaþrefið á Alþingi og þróun Tryggva sem stjómmálamanns. Hann rekur uppvöxt Tryggva og arfinn frá Grund, konunghoU- ustu og nokkurt dálæti á Dönum, sem ein- kenndi þingeyska bændur og útvegsmenn um og eftir miðja 19. öld og síðar. At- hafnasemi þeirra manna mátti rekja til styrks af hákarlaútgerðinni við Eyjafjörð um sama leyti. Höf. fjallar nokkuð um, hversvegna Tryggvi var ekki sendur í skóla, og rekur ýmsar ástæður fyrir því að að því var ekki horfið. Ein ástæðan gæti hafa verið sú, að óróinn í Latínuskólanum kringum pereatið hafi hamlað áhugan- um fyrir dvöl Tryggva í þeirri stofnun. Höf. lýsir af nærfærni viðskiptum Tryggva 1 Bergsteinn Jónsson: Tryggvi Gunnarsson III. bindi. Stjórnmúlamaður. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, 1972. 709 bls. 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.