Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 121

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 121
valdablokka og efnahagsafla. Fjöldi mynda fylgir og hefði ekki sakað að skýringar fylgdu í ríkara mæli en gert er. Þótt margt megi að ritinu finna, þá er það gagnsamlegt, eins og áður segir, stað- reyndir raktar og sumar athugasemdh' höf- undar um menn og málefni glöggar og at- hyglisverðar, svo það hvarflar að manni að óheppilegri varúð hafi verið beitt, og ýmsu sleppt sem hefði gert ritið ítar- legra og betra sagnfræðirit. En hvað um það, hér má slá upp atburðarásinni eins og hún var samkvæmt þeim heimildum sem höfundur notar. Frágangur bókarinn- ar er góður. Heimir Þorleifsson segir réttilega í bók sinni, að togaraútgerðin hafi í fyrstu ver- ið rekin fyrir erlent lánsfé Islandsbanka og síldarbræðslan með norsku „kapítali“. Aður höfðu staðið miklar deilur um stofn- un erlends hlutabréfabanka hér á landi. Þingið 1895 olli þáttaskilum í íslenzkri pólitík, „commersíalisminn" heldur inn- reið sína í íslenzkt santfélag, hin harða stefna Benedikts Sveinssonar lætur í minni pokann fyrir nýrri stefnu málamiðlunar, sem byggði á afslætti í sjálfræðiskröfum gegn erlendri fjármögnun hérlendis, til eflingar efnahagslegum framförum og moderniseringu samfélagsins. Stefnubreyt- ingin á þinginu 1895 er inntak rits Gunn- ars Karissonar, deilurnar um stjórnarskrár- baráttuna og orsakir stefnubreytingarinn- ar.1 Höfundur rekur þessa sögu af ná- kvæmni og ágætum söguleguin skilningi og gcrir einnig grein fyrir þeim hvötum, sem réðu afstöðu þingmanna til breyttra við- horfa við óformlegt tilboð dönsku stjómar- innar og einnig aðdragandanum að afstöðu þeirra á þinginu 1895. Rit þetta er lykilrit, 1 Gunnar Karlsson: Frá Endurskoðun til Valtýsku. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1972. 167 bls. Umsagnir um bœkur þingið 1895 olli þáttaskilum í sjálfstæðis- baráttunni og samþykktir þess leiddu til kviknunar borgarastéttar á íslandi, sem tók að aðhæfa framleiðsluhættina kapítal- ísku hagkerfi. Með stofnun Islandsbanka hófust umsvif í ýmiskonar kaupsýslu og útgerð. Gullgrafarabragurinn var áber- andi og kom fram í nafngift almennings á síldarútvegsmönnum, „spekúlant". Hér úði og grúði af þessurn spekúlöntum á öll- um sviðum, það var spekúlerað í síldarút- vegi, togaraútgerð, fossum og alls konar prangi. Húrrapatríótisminn hélt innreið sína á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, sem var það form ættjarðarástar, sem einskorðað var við íslenzka smákapítal- ista, og smitaði reyndar út frá sér í ýmis- konar framfarafélagsskap upp úr aldamót- unum. Meðan vel gekk, hirtu erlendir hlut- hafar Islandsbanka arðmiðana meðan pró- letarastétt tók að myndast úr bændafólki, sem gat ekki lengur framfleytt sér af land- búnaðarrekstri sfðmiðalda, eins og tíðkað- ist hér fram á íjórða áratuginn. Höfundur getur þess, að þingið hafi einkum verið skipað bændum og emb- ættismönnum fram á tíunda tug aldarinn- ar, en þá hafi meira tekið að brydda á kaupsýsluhagsmunum meðal þingmanna, sumir þeirra voru tengdir kaupfélögum og verzlun. Þessir menn ásamt hagnýtissjón- armiðum yngri kynslóðarinnar meðal menntamanna mótuðu stefnuna. Benedikt Sveinsson segir að „materíalistarnir" „til- biðji og magni eiturnöðruna (efnishyggj- una) í brjósti bænda". Höfundur telur að almenningsálitið hafi verið þvingað til fylgis við stefnu Benedikts Sveinssonar, endurskoðunarstefnuna og því hafi upp- reisnin gegn endurskoðunarstefnunni „ver- ið í fyrstu hvort tveggja í senn harkaleg og þó hikandi". Þjóðemisstefnan var talin stefna endurskoðunarmanna og öll til- raun til málamiðlunar óþjóðleg, þjóðsvik. 111
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.