Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 18
Tímarit Máls og menningar
Frá ritstjóra
Ekkert þema er sjáanlegt í þessu hefti og þykir eflaust ýmsum sem þar kenni
nokkurs glundroða. Þeim til huggunar skal tekið fram að hér með eru þema-
hefti ekki lögð fyrir róða í eitt skipti fyrir öll; mikið efni hefur safnast fyrir og
ekki þótti ráðlegt að reyna að kúga það inn í eitthvert þema, enda vandséð
hvaða tilgangi það þjónaði.
Hér kennir ýmissa grasa. Þeir Arni Oskarsson og Örn D. Jónsson skrifa um
merkismanninn William Morris, en hugmyndir hans eru sérlega tímabærar nú
þegar margir leita leiða til að maðurinn geti lifað og starfað á þessari jörð án
þess að eyða henni. Morris var sósíalisti, en þótti sérlundaður vegna þess að
honum fannst iðnbyltingin of dýru verði keypt. Hann iðkaði þó ekki einskær-
an heilaspuna, heldur var óþreytandi að fitja upp á alls kyns framleiðslunýj-
ungum. Að auki hefur saga hans sérstakt gildi fyrir okkur Islendinga, sökum
þess hve annt hann lét sér um land og þjóð, sá raunar í arfi okkar ýmsa vísa að
framtíðarskipulagi.
Grein Helgu Kress um Tímaþjófinn eftir Steinunni Sigurðardóttur sætir tíð-
indum, vegna þess að Helga notar á markvissan hátt flest það helsta sem fram
hefur komið í femínískum bókmenntarannsóknum á síðustu árum, til að nálg-
ast verk Steinunnar. Hér er aðgengilegt yfirlit yfir þessa stefnu bókmennta-
fræðinnar um leið og greinin er krökk af stórskemmtilegum dæmum úr bók-
inni. Greinin mun vekja deilur því kenningarnar eru róttækar; sumir munu
stökkva upp á nef sér, aðrir munu eiga erfitt með að hemja fögnuð sinn. . .
Nú verða ritstjóraskipti. Silja Aðalsteinsdóttir lætur nú af störfum hjá Máli
og menningu eftir meira en sex ára starf. Hún hefur verið aðalritstjóri Tíma-
ritsins frá ársbyrjun 1982 og hefur það dafnað vel undir hennar stjórn eins og
lesendur vita manna best. Þeir sem eftir sitja vilja þakka henni sérlega skemmti-
legt samstarf og láta í ljós þá von að Mál og menning megi njóta krafta hennar
um langan aldur.
Ekki þarf að minna lesendur á að sinna meðfylgjandi gíróseðlum. Bæði er
það vitaskuld mikilvægt tímaritinu, og eins má minna á að greiði fólk gíróseðl-
ana getur það keypt bækur forlagsins á félagsverði.
GAT
8