Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Síða 43

Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Síða 43
Eftir spennufalhd komin sönnunin fyrir óheiðarleika Guðna. Sjoppan sem yfirvarp væri einmitt hugsuð sem eitthvað nógu fáránlegt til að blekkja lög- regluna, enda væri það augljóst af rekstrarfyrirkomulaginu að þetta væri ekki neitt raunverulegt fyrirtæki, heldur aðeins framhlið fyrir glæpastarfsemi. Eplakassarnir væru eins og egg sandlóunnar: orpið á víðavangi þar sem engum dytti í hug að leita. Og hvaðan gæti mað- urinn svo sem haft allt þetta fé? Með því að þiggja þessi laun, þessa blóðpeninga, væru þau hjónin auðvitað að nærast á ógæfu annarra. Þannig lét Ormur dæluna ganga, en byrjaði svo lævíslega að telja Eddu á að úr þessu yrði ekki skorið nema með því að gá í eplakass- ana. Ef Guðni væri með allt sitt á þurru þá næði það bara ekkert lengra, en ef það væri eins og hann héldi, að kassarnir væru fullir af eiturlyfjum, þá væri það auðvitað skylda þeirra að fletta ofan af honum. Og farsælast til lengdar. Edda maldaði áfram í móinn og sagðist loks að minnsta kosti vilja bera þetta undir Aðalstein. Það sagði Ormur af og frá, best væri að Ijúka því sem fyrst. Bara strax. Hann var allt í einu orðinn ógnandi, kvaðst öðrum kosti mundu sjálfur kalla á lögreglu þá þegar. Þá lét Edda undan. Þau gengu að kössunum. Ormur dró upp úr pússi sínu dyrka og stálfjaðrir af ýmsum gerðum og var ekki lengi að opna lásana. Síðan lyfti hann lokunum varlega. Edda varð harla fegin þegar innihaldið blasti við þeim. Þar var ekki að sjá neina poka með hvítu dufti, enga dökkleita klumpa og hlunka, enga torkennilega vökva, pillur, belgi og stauta, engar sprautur, eins og Ormur var búinn að útmála fyrir henni áður. I öðrum kassanum var skúringafata úr plasti og fáeinar hálfrakar tusk- ur, auk hreingerningavökva. I hinum kassanum var kvenfatnaður ýmis, nær- og fjær-, snyrtigræjur og loks ljóshærð, síðhærð hár- kolla. Ormur horfði lengi ofan í kassann. Hann tók upp hreingern- ingabrúsa, skrúfaði tappann af og þefaði. Hann fann salmíakslykt. - Eg skil, sagði hann, og Edda heyrði á raddblænum að hann skildi einmitt ekki neitt. - Þarna sérðu, sagði hún, og jafnvel þó hann sé með eitthvert óeðli hérna á næturnar, þá er það bara eitthvað sem okkur kemur ekkert við, allra síst þér. Hún lokaði kössunum og læsti þeim á ný, sárgröm sjálfri sér fyrir ™m iii 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.