Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 66

Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 66
Tímarit Máls og menningar útvarpinu. Annars vegar er sem sagt um tilbeiðslu og þrá að ræða, hins vegar niðurrif og spott. Milli þessara tveggja skauta sveiflast — eða öllu heldur flæðir — ekki aðeins persónan Alda, heldur einnig texti bókarinnar. Alda ferst, „ein báran stök“ (60), ofurseld þeim þjóðfélagslegu lögmálum sem ráða. Hún sjálf gerir enga uppreisn, enda vandséð hvernig sú uppreisn ætti að vera. Það gerir hins vegar textinn með flæði sínu og grótesku, írónísku sjónarhorni og margslungnu myndmáli, þar sem svo til hvert atr- iði frásagnarinnar, og ekki síður þar sem verið er að lýsa hversdagslegasta umhverfi og venjulegustu atburðum, fær táknræna og óræða vídd. Þessi eiginleiki textans vekur óróa og ugg um að ekki sé allt með felldu og veruleikinn ekki þar sem hann er séður. Orðrœða ástarinnar Sú samlíking ástar og trúarbragða sem gengur sem leiðarminni um Tíma- þjófinn er einkar athyglisverð borin saman við kenningar Juliu Kristevu í Histoires d’amour— eða ástarsögum — frá árinu 1983.2 I þeirri bók rekur hún sögu ástarinnar á Vesturlöndum um heimspekirit og bókmenntir allt frá tímum Platós til okkar tíma og fléttar um leið máli sálsjúkra. Astin hefur tekið við af trúarbrögðunum, segir hún, og einmitt í því felst kreppa nútímamannsins og djúpstæð óhamingja hans. Það sem þjáir hann mest er nefnilega skortur á ást. Hann á í erfiðleikum með að gefa sig annarri mann- eskju og tilfinningum á vald, færa sitt eigið sjálf yfir á annan, og fáj>annig útrás fyrir þessa frumþörf gagnkvæmni, tilbeiðslu og snertingar. I ástar- þránni er takmarkið ævinlega fjarlægt. Það er annars staðar og því verður aldrei náð. Þessi tilfinning um ástleysi og skort kemur fram sem einhvers konar eirðarleysi, einmanaleiki, þunglyndi og öryggisleysi gagnvart ástinni. Slík tilfinning er hættuleg samfélaginu og því er hún þar að meira eða minna leyti bæld, ómeðvituð og orðlaus. Vestrænan heim nútímans vantar orð yfir ástina, segir Kristeva, og hún bendir á að engu sé líkara en ástarreynsl- an í menningu okkar sé að hverfa, þar sem hún eigi svo erfitt með að finna sér farveg, komast til skila. Hún verður ekki sögð á því almenna máli sem samfélagið viðurkennir, heldur einungis á máli skáldskapar (og að vissu marki sálsýki), þar sem hún kemur fram í því sem Kristeva kallar orðræðu ástarinnar. En þessi orðræða í nútímaskáldskap verður að meira eða minna leyti að fá lánaðar orðræður ástarinnar úr fortíðinni og vinna úr þeim. Með orðræðu ástarinnar tekur Kristeva upp þráðinn frá Roland Barthes sem í riti sínu Fragments d’un discours amoureux frá árinu 1977 skilgreinir þessa tegund orðræðu og flokkar helstu einkenni hennar út frá völdum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.