Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 102
Tímarit Máls og menningar gefur á sjálfsmynd persónunnar Oldu, heldur öllu fremur þá sjálfsmynd eða vitund sem birtist í sjálfum textanum og hann er um leið sprottinn úr. Það er eitt af einkennunum í frásagnaraðferð þessarar bókar að þar getur stundum verið erfitt að skilja milli textans og aðalpersónunnar Oldu sem segir söguna. Aðhyllist textinn t.a.m. hugmyndir Öldu þegar hún er að lýsa yfir eigin ágæti, ættgöfgi sinni, fegurð, gáfum, skemmtilegheitum og kyntöfrum? En um þetta hverfast hugsanir hennar meira og minna í algerri sjálfhverfni sem hætt er við að gangi fram af lesandanum, hann eigi erfitt með að fylgja henni í og heimti að textinn andmæli. Spurningum sem þessum er stundum erfitt að svara, og þær skipta kannski ekki máli. Það sem máli skiptir er að í textanum eru slíkar hugmyndir á sveimi og það kann að hafa sínar ástæður. Hvað segir þetta? Hvað merkir það? Þannig flæða texti og persóna oftar en ekki hvað í annað. Ur því verður engin ein rödd sem segir hvernig túlka beri, og heldur ekki raddir sem hægt er að skilja hverja frá annarri, heldur raddir í öngþveiti, ósamhljóða, mót- sagnakenndar og í sífelldri baráttu og togstreitu. Sú sjálfsmynd sem þær birta er heldur engin ein og fyrirfram gefin sem hægt er að ganga að vísri þegar maður fyrst hefur fundið hana, heldur sundruð, ósamstæð og á sífelldri hreyfingu. Þetta rásandi sjálf, sem svo kallast á máli táknfræðinnar, og hvergi finnur sér fastan stað er ekki aðeins einkenni á stíl bókarinnar, heldur jafnframt annað meginviðfangsefni hennar. 21 Reyndar snúa gluggarnir á kennarastofunni í Menntaskólanum í Reykjavík ekki að Lækjargötu. Þetta skiptir kannski ekki öllu máli, en kann þó að verka trufl- andi á staðkunnuga. Það eru fleiri slíkar „villur“ í bókinni, eins og t.a.m. þegar Alda er látin vera að kenna 1. desember (bls. 34) sem til skamms tíma hefur verið frídagur í skólum. 22 Julia Kristeva, „Les temps des femmes“. Greinin var fyrst prentuð í Cahiers de recherche de sciences des textes et documents 1979. Ensk þýðing „Women’s Time“ hefur m.a. komið í Signs 1 1981 og The Kristeva Reader (Ed. Toril Moi), Basil Blackwell, Oxford 1986. 23 Julia Kristeva, Pouvoirs de l’horreur, Editions du Seuil, Paris 1980. Ensk þýð- ing: Powers of Horror, Columbia University Press, New York 1982. íslenska orðið „úrkast“ er fengið úr ágætri grein Garðars Baldvinssonar um fyrirbrigðið, ,,„Ég veit varla hvar.“ Asta Sigurðardóttir og femínismi," Ársrit Torfhildar, Félags bókmenntafrceðinema við Háskóla Islands 1987. 24) Um máleyðingu ellinnar sjá Luce Irigaray Le Langage des dements Mouton, Paris 1973; sbr. Toril Moi Sexual/F'extual Politics bls. 127. 25 Margaret Higonnet, „Speaking Silences: Women’s Suicide", The Female Body in Westem Culture (ed. Susan Rubin Suleiman), Harvard University Press, Cambridge, Massachusetts 1986, bls. 73. 26 Um þetta fjallar Julia Kristeva í bók sinni um kínverskar konur: Des Chinoises (des femmes, Paris 1974 ) í kafla um sjálfsmorð skáldkvennanna Virginiu Woolf, Mariu Tsvetaeva og Sylviu Plath. Hér er vitnað til enskrar þýðingar kaflans í The Kristeva Reader (ed. Toril Moi), Basil Blackwell, Oxford 1986, bls. 158. 27 Sjá La Revolution de langage du Poetique. Kafla II. 92
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.