Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Side 146

Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Side 146
Tímarit Máls og menningar því að haga mér eins og skepna svo lengi sem raun er á orðin. En slíkt framferði breytist í atómbombuna, því margt smátt gerir eitt stórt og þar liggur kjarni málsins. Að vera vondur við næsta mann, það er at- ómbomban, og ég skal segja það þótt hlegið verði að mér út um allan bæ fyrir vikið. Það er atómbomban, heyrið þið það, það er satt. (19) Svona eru bókmenntir. Þetta er vel sagt og vel hugsað - að vera vondur við næsta mann, það er atómbomban - en aðdragandinn er undurfurðulegur. Það fer ekki á milli mála að hér er höfundur bókarinnar að tala um sín hjartans mál - hjartans mál okkar allra - en innan um og saman við lætur hann algerlega slá út í fyrir höfundi bréfsins, auk þess sem hann fellur í alla þá pytti sem á vegi þess verða sem fer að tjá sig um kjarnorku- málin. Allt bréfið er svona skringileg blanda af hálfvitagangi og lífsvisku og í því birtist helsta þversögn bókarinnar: hún er skrifuð af einlægni á kýnískan hátt. Stíllinn fær svip af þessu, hann er hér og hvar rismikill og hægur, en oftar þó keyrður upp. Framan af, meðan verið er að rissa upp Össur og fjölskyldu hans, er margt mjög skemmtilega orðað - þegar Ólafi tekst upp standast fáir ís- lenskir höfundar honum snúning í frá- sagnargleði og hittni í mannlýsingum. En þegar á líður og furðunum fjölgar, einkum þegar lýst er svalli vítisengl- anna, er eins og of mörgu sé hrúgað saman. Tökum dæmi af lítilli setningu: „Hann baðaði út öllum öngum, - það verður bara, ja, gryfja, Össur minn, hann gaf frá sér skræk í gleði sinni og saup munnvatn hamslaus af gulum og slímugum tönnunum . . .“ (71). Hér eru fyrir minn smekk of margir effektar saman komnir til að þeir orki vel sam- an. Fólk veinar æði mikið í seinni hluta bókarinnar, skrækir, emjar, æpir og hrín - það er mjög sjaldan sem nokkur segir nokkuð, og fyrir vikið daprast áhugi lesanda. Frásögnin veltur á ógnar- hraða fram úr honum, það vantar í hana fleiri takttegundir. Ólafur Gunnarsson hefur til að bera marga öfundsverða eiginleika sem rit- höfundur: hann er kraftmikill stílisti, frásagnargáfa hans er einstök, mannúð- in mikil og siðferðileg ábyrgðartilfinn- ing hans er lofsverð. En ég held að ef hann temdi sér örlítið meiri mýkt í mannlýsingum, staldraði stundum leng- ur við lýsingu atvika og leyfði sér að minnka ögn taumhaldið á þeirri tilfinn- ingasemi sem sést í bókum hans - án þess þó að ég sé að biðja um kjökur- bókmenntir - þá sé frá honum að vænta stórvirkis. Gubmundur Andri Thorsson 136
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.