Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 143
Skírnir
Hugleiðingar um íslenzk mannanöfn
141
stöðu er óeðlilegt miðað við íslenzka stafsetningu, en ekki við
framburð mikils hluta þjóðarinnar, því að / er í þessari stöðu
borið fram d um mikinn hluta landsins, sbr. ata [a:da]. Nafn-
ið hefir nú enga nefnifallsendingu. Heimildir eru um nafnið
frá fyrri hluta 15. aldar, en það hefir alltaf verið sjaldgæft,
1 nafnberi 1703, 3 nafnberar 1855 og 2 árið 1910. Tvö börn
voru skírð þessu nafni 1921-—40.
Barbara fellur þokkalega að íslenzku málkerfi, ef aukaföll
eru höfð Barböru, eins og nú mun tíðkast. Tvö dæmi eru um
nafnið frá 15. öld og eitt frá því um 1500. Á þeim tíma virð-
ast aukaföll hafa verið Barbaru eða Barbáru1), en það skiptir
engu máli fyrir beygingu orðsins nú. Nafn þetta var alltítt
um skeið. Þannig hétu 16 konur þessu nafni 1703. Hins veg-
ar voru aðeins 4 nafnberar 1855 og 1 árið 1910. Fjögur börn
voru skírð þessu nafni 1941—50. Þess er að engu getið í bók
H.P.
Bríet. Mörg afbrigði þessa nafns hafa tíðkazt á Islandi.
Brigit eða Brigitt (eignarfall ritað Brigitar) er kunnugt frá
14. öld og jafnvel Brigida. Birgitta er kunnugt úr allgömlu
bréfi. Bréf þetta er talið falsbréf, í núverandi mynd frá 16.
öld. Nöfn eru þó ekki talin fölsuð, svo að heimildin mn nafn-
ið kann að vera allmiklu eldri. Þolfallsmynd orðsins var Birg-
ittu (ritað bijrgijttu), en nefnifall kemur ekki fyrir í bréfinu,
sbr. D.I. 111,448. Birgit er kunnugt frá 15.öld og Brít, ritað
bríjtt í þágufalli í D.I. VIII, 415 og á sama hátt í þolfalli í
D.I. VIII, 496, frá 16. öld. Árið 1703 bera 24 konur nafnið
Birgit, 1 nafnið Birgitta, 20 nafnið Bríet, 2 nafnið Briget, 1
nafnið Brigida og 1 nafnið Brigiet. Alls eru þannig 49 konur,
sem bera eitthvert afbrigði þessa nafns árið 1703. Árið 1855
ber engin kona nafnið Birgit, 14 nafnið Birgitta, 5 Bríet og 2
Brigget eða samtals 21 kona. Árið 1910 heitir 1 Birgit, 17 Birg-
itta, 9 Bríet eða samtals 27 konur. 1921—50 voru 32 börn
skírð einhverju afbrigði þessa nafns: Birgit 9, Birgitta (-te) 14,
Bríet 8 og Britta 1. Sést af þessu yfirliti, að nafnið hefir verið
allalgengt í ýmsum gervum. H.P. telur Birgit, Birgitta og Bríet
Rithátturinn barbaro (D.I. IV, 714) og barbaru (D.I. VII, 473)
getur vel táknað Barbáru, enda er sú nafnmynd kunn frá 19. öld.