Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 147
Skirnir
Hugleiðingar um íslenzk mannanöfn
145
enginn VernharS. Árið 1910 er annað uppi á teningnum. Þá
bera 13 nafnið BernharS, en 5 BernharSur og 5 VernharS og
5 Vernhar&ur. Afturkippur hefir komið að sumu leyti í þessa
þróun 1921—50, því að þá er 31 barn skírt BernharcL (-rS),
9 Bernhar&ur, 2 VernharS og 11 Vernhar&ur. Geta má þess,
að nafnmyndin VernharS (eða VernarS) er gömul í íslenzku
— ef til vill eldri en VernharSur, sbr. D.I. VI, 69, 582. Nafn-
myndimar BernharSur og VernharSur eru tilgreindar undir
BjarnharSur, sem er samkvæmt mínum smekk fegursta nafn-
myndin og íslenzkulegust, en hefir þó ekki reynzt þess um-
komin að vinna bug á hinum eða yfirleitt að vinna sér þegn-
rétt í málinu. Þessi nafnmynd kemur ekki fyrir 1703, 1855,
1910 né 1921—50. Lind getur þess ekki í sinni bók, að nokkur
íslendingur hafi borið þetta nafn fyrir siðaskipti. H.P. telur
nafnið „sennilega“ hafa verið notað hér siðan á 13. öld. Ég
efa ekki, að hann hefir eitthvað fyrir sér í því. En fátíð hlýt-
ur þessi nafnmynd að hafa verið.
Ég skal ekki orðlengja um þessi endingarlausu nöfn, en vil
þó benda á, að sömu reglu er fylgt í bók H.P. um nöfnin
Gústaf (Gautstafur), Hinrik (Heinrekur), KonráS (KonráS-
ur), RíkharS (RíkharSur) og ÞiSrik (ÞjóSrekur, ÞiSrekur).
Einn er þó sá hópur nafna, sem höfundur lætur afskiptalaust,
þótt ekki hafi nefnifallsendingu, en það eru nöfn, sem enda
á -mann, t. d. Ármann, GuSmann, Hermann, Kristmann.
Flest eru þau tökunöfn. Mér er vel ljóst, að ástæðulaust og
ógerlegt er að taka upp nafnmyndir eins og ÁrmaSur, Her-
maSur o. s. frv. En er ekki jafnástæðulaust að taka upp nefni-
fallsendingu að minnsta kosti í þeim nöfnum, sem segja má,
að algerlega hafi glatað henni, t. d. FriSrik, Gottskálk og Hin-
rik. En hitt er rétt, að öðru máli gegnir um nöfn, sem hafa
tvímyndir í nútímamáli, svo sem BernharS(ur), RíkharS(ur)
og VernharS(ur). Að því ber að vinna að festa þær myndir
í sessi, sem endingu hafa,
II.
I Lögum um mannanöfn nr. 54/27. júní 1925 segir m. a.
svo (6. gr.): „Stjórnarráðið gefur út skrá, eftir tillögum heim-
10