Skírnir - 01.01.1960, Blaðsíða 146
144
Halldór Halldórsson
Skímir
segja, sem höfundur kemur þar fram með. Ég skal ekki eyða
að þeim mörgum orðum, því að yfirleitt er ég þeim sammála.
En að einu atriði tel ég þó rétt að víkja. Höfundur telur, að
nöfn verði að fylgja beygingakerfi tungunnar. Þessu er ég
sammála, en tel hann þó beita þessari reglu af fullmikilli
einsýni. Höfundur telur rangnefni nöfn eins og HallfréS, Ás-
berg. Þau eigi að réttu lagi að heita HallfréSur, Ásbergur.
Við alíslenzk nöfn, sem að minnsta kosti öðrum þræði hafa
varðveitt nefnifallsendingu, tel ég algerlega rétt að beita þess-
ari reglu. En málið vandast, þegar kemur að tökunöfnum,
sem höfundur vill, eins og óhjákvæmilegt er, ekki með öllu
útrýma. Yfirleitt vill höfundur setja á erlendu nöfnin nefni-
fallsendingu, að minnsta kosti ef finna má dæmi þess í ís-
lenzkum ritum, að þau hafi haft hana, jafnvel þótt ekki sé
sýnt, að íslenzkir menn hafi borið það nafnform. Sem dæmi
mætti nefna nafnið FriSrekur. Það er í hæpnara lagi að segja,
að nafnið hafi nokkru sinni í þessu gervi orðið „íslenzkt“ nafn.
Þetta nafnform kemur fyrir í fornritum sem nafn á útlend-
ingum, og það er tilgreint sem síðara nafn á einum manni í
manntalinu 1910. Höfundur telur nafnmyndina FriSrik hafa
tíðkazt hér í tvær aldir. Allmiklu eldri mun hún þó vera, því
að 3 menn hétu þessu nafni 1703. Friðrik var i röð algengari
nafna 1910 (328 nafnberar) og 1921—50 eru 410 börn skírð
FriSrik og Fredrik. Þessi mynd nafnsins er heldur ekki bann-
færð í bók H.P., en heldur er haft horn í síðu hennar. Svip-
uðu máli gegnir um nafnið Gottskálkur. Nefnifallsmyndin
Gottskalker, Gottscalker er kunn úr D.I. V, 483 (frá 1467),
en venjuleg nefnifallsmynd á Islandi hefir alltaf verið Gott-
skálk. Engin önnur nafnmynd er tilgreind 1703 (25 nafnber-
ar), 1855 (17 nafnberar), 1910 (11 nafnberar) né 1921—50,
þegar 10 börn eru skírð Gottskálk. I riti H.P. er þessarar
nafnmyndar þó að engu getið. Ekki gegnir sama máli um
nafnmyndirnar BernharSur og VernharSur. Ég tel að vísu,
að rétt hefði verið að tilgreina nafnmyndimar BernharS og
VernharS. Árið 1703 er aðeins notuð myndin BernharSur (7
nafnberar) og VernharSur (7 nafnberar). Árið 1855 bera 3
nafnið BernharSur, en enginn BernharS, 12 VernharSur, en