Skírnir - 01.01.1969, Side 167
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
161
málinu áfram, þar sem við svo ramman sé reip að draga, efnahagur
hinn bágasti, er verið hafi um langan aldur og danska stjórnin og
embættismennirnir, sem henni fylgi, ótilleiðanlegri og stirðari við-
fangs en nokkuru sinni fyrr í stjórnarbaráttu vorri.
Eins og fyrr segir náði Þingvallafundarboðið síðar til Þjóðvilj-
ans en annarra blaða, og flutti Þjóðviljinn það 12. júlí. Um leið
og hann flutti fundarboðið lét hann þess getið, að það hitti Vest-
firðinga eigi óviðbúna, í flestum kjördæmum vestra muni kosningar
til fundarins annað tveggj a þegar um garð gengnar eða langt á leið
komnar. Svo var bæði vestra og víðar um land, að kj örmannakosn-
ingar í hreppum fóru fram, vafalaust samkvæmt bréfi Einarsstaða-
fundarmanna, nokkuru fyrr en Þingvallafundarboðið var birt, og
sums staðar voru kj ördæmisfundir til að kjósa fulltrúa á Þingvalla-
fund einnig haldnir áður en fundarboðið kom í blöðum, en á flestum
kjördæmisfundum mun mönnum samt hafa verið kunnugt, að Þing-
vallafund skyldi kalla saman 20. ágúst.
Þjóðviljinn er allra blaða skeleggastur í sjálfstæðismálunum.
Hann flytur í sama blaði og Þingvallafundarboðið grein með fyrir-
sögn: „Hvað skal þá gert?“, ræðir stjórnarskrármálið, verzlunar-
málin og fleiri þjóðmál, sem hann telur sjálfsagt, að Þingvallafundur
fái til meðferðar, og segir síðan: „Loks teljum vér alveg nauðsyn-
legt, að Þingvallafundurinn taki til rækilegrar íhugunar, hvort eigi
muni vel við eiga að byrjað sé, annaðhvort strax eða þá, ef stjórnar-
bótakröfum vorum eigi er sinnt innan tiltekins tíma, að koma á sam-
þykktum um land allt til að útrýma, sem frekast eru föng á, öllum
verzlunarskiptum við Dani.“ í sömu grein segir Þjóðviljinn, að
Þingvallafundurinn verði að gera sitt til að koma á lögbundnum
pólitískum félagsskap um land allt til þess að vinna að framgangi
stjórnarskrármálsins. Hér er stungið upp á að stofna skipulagðan
landsmálaflokk endurskoðunarmanna. Sama máli er hreyft í bréfi
þjóðliða til fulltrúa á Þingvallafundi, sem síðar getur nánar.
Heimildir um Þingvallafundinn 1888 eru fyllri en heimildir, sem
til eru um fyrri Þingvallafundi. Svo er ekki einungis um fundinn
sj álfan, heldur og um undirbúning að honum. Um þetta hvort tveggj a
eru frumheimildir í skjalaböggli, sem geymdur er í Þj óðskj alasafni.
Þar eru skráðar ræður fundarmanna og annað sem á fundinum gerð-
11