Skírnir - 01.01.1969, Page 170
164
BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON
SKÍRNIR
Hvítárvöllum, kosinn með 11 atkvæðum á kjörmannafundi að Leirá
14. júlí. Varafulltrúi Þórður bóndi Þorsteinsson á Leirá kosinn með
10 atkvæðum.
Kjörmenn, alls 22, voru kosnir í öllum 10 hreppum sýslunnar.
Kjörfund sóttu aðeins 16 kjörmenn, en enginn hreppur var án full-
trúa á fundinum. Samkvæmt kjörskrám hafa kjósendur til Alþingis
verið 265 í kjördæminu, en 172 eða 64,90% tóku þátt í kosningum
kjörmanna.
Ekki var samþykkt ályktun um stj órnarskrármálið, en sá háttur
á hafður, að fundarstjóri spurði hvern kjörmann sér í lagi um skoð-
un hans á málinu. Allir nema þrír vildu halda því áfram, en sumir,
sem það vildu, voru þó ekki alls kostar ánægðir með hina endur-
skoðuðu stjórnarskrá, sem samþykkt var á þingunum 1885 og
1886.
Fyrir Mýrasýslu var Ásgeir Bjarnason, bóndi á Knarrarnesi, kos-
inn með 10 atkvæðum á kj örmannafundi að Borg 6. júní. Varafull-
trúi, Jónatan Salómonsson, bóndi í Hjörsey, kosinn með 9 atkvæð-
um.
Kjörmenn, alls 19, voru kosnir í öllum 7 hreppum sýslunnar, og
sóttu 16 þeirra kjörfund. Á fundinum voru kjörmenn úr öllum
hreppum sýslunnar. Eftir kjörskrám voru kjósendur til Alþingis í
Mýrasýslu 183, og tóku 121 eða 66,12% þátt í kosningum kjör-
manna.
Á kjörfundinum var ekki samþykkt ályktun um stjórnarskrár-
málið, en umræður hnigu „yfir höfuð í þá átt“, segir í fimdarskýrsl-
unni, „að halda ætti máli þessu fram af alefli á næsta þingi“.
Alþingismaður kj ördæmisins, síra Árni Jónsson, hafði forgöngu
um kosningar kjörmanna og kosningu fulltrúa á Þingvallafund.
Fyrir Snæfellsness- og Hnappadalssýslu var síra Stefán Jónsson í
Hítarnesi kosinn í einu hljóði á kjörmannafundi í Stykkishólmi 1.
ágúst. Fundur þessi var nefndur Þórsnesfundur, eins og títt mun
hafa verið um þingmálafundi þar í sýslu.
Úr þessu kjördæmi eru ekki til önnur kjörgögn en skýrsla um kjör-
fundinn í staðfestu eftirriti. Samkvæmt henni voru á fundinum kjör-
menn úr fimm hreppum sýslunnar, Kolbeinsstaðahreppi, Neshreppi
ytra, Neshreppi innra, Helgafellssveit og Skógarstrandarhreppi, einn
úr hverjum hreppi. í öðrum hreppum voru ekki kosnir kjörmenn,