Skírnir - 01.01.1969, Page 174
168
BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON
SKÍRNIR
í Skagafjarðarsýslu með vissu 166. Ekki hef ég átt kost heimilda
um kjósendatölu sýslunnar.
Á kjörfundinum urðu alllangar umræður um stj órnarskrármálið,
„og voru allir einhuga á“, segir í fundarskýrslunni, að brýna nauð-
syn bæri til, að landstjórn vor gæti orðið sem mest innlend, en sök-
um kostnaðar við aukaþing og harðinda í landinu voru skiptar skoð-
anir um það, hvort halda bæri málinu svo snarplega fram á Alþingi
1889, að aukaþing yrði að halda 1890. Þó taldi meirihlutinn úrslit
málsins á þingi 1887 mjög óheppileg. Samþykkt var með öllum at-
kvæðum tillaga þess efnis, að Þingvallafundurinn skyldi senda kon-
ungi bænarskrá um, að endurskoðað stj órnarskrárfrumvarp yrði
lagt fyrir Alþingi 1889, en fundurinn skyldi til vara skora á Al-
þingi 1889 að taka málið til meðferðar, ef bænarskránni yrði ekki
sinnt, og halda því fram í hkum anda og 1885 og 1886. Síðan var
samþykkt með 19 atkvæðum tillaga um, að ef Þingvallafundurinn
aðhylltist eigi þessa aðferð, skyldi hann skora á Alþingi 1889 að
halda málinu fram í Hkum anda og 1885 og 1886. Friðrik Stefáns-
son alþingismaður, sem var einn kjörmanna, greiddi ekki atkvæði
um þessa tillögu.
Auk stjórnarskrármálsins var nokkuð rætt um ferðir gufuskip-
anna umhverfis landið, og skoraði fundurinn á hina kjörnu fulltrúa
að fylgja fram óskum manna um það, að þeim yrði komið í betra
horf.
Samþykkt var að fulltrúarnir skyldu fá ferð sína borgaða með 66
krónum hvor.
í Skagafj arðarsýslu höfðu fyrri þingmaður kjördæmisins Ólafur
Briem og cand. phil. Jón Jakobsson forgöngu um undirbúning að
Þingvallafundi.
Fyrir Eyjafjarðarsýslu voru kosnir á kjörmannafundi á Akureyri
11. júní Jónas Jónasson, prestur til Grundarþinga, með 19 atkvæð-
um og Friðbjörn Steinsson, bóksali á Akureyri, með 18 atkvæðum.
Varafulltrúi var kosinn með 9 atkvæðum Páll Hallgrímsson, bóndi
á Möðrufelli. Þingmenn Eyfirðinga höfðu boðað til fundarins.
Á fundinum voru 19 kjörmenn úr 7 hreppum sýslunnar og einn
úr Akureyrarkaupstað. í sýslunni voru 10 hreppar, en í þrem þeirra,
Hvanneyrarhreppi, Þóroddsstaðahreppi og Grímseyj arhreppi, voru
ekki kosnir kjörmenn. Úr fimm þeirra hreppa, sem kusu kjörmenn,