Skírnir - 01.01.1969, Side 211
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
205
nefndar, en sú síðari, um áskorun til alþingismanna, nefnd aukatil-
laga.
Alyktunarumræða um stjórnarskrármálið var síðara fundardag-
inn, 21. ágúst.
Framsögumaður, Skúli Thoroddsen, sagði, að nefndin hefði viljað
fara sem vægilegast í málið og eigi rígbinda sig við neitt sérstakt
frumvarp, hvorki frumvarpið frá 1885 né 1887, en leggja áherzlu á
að fá alinnlenda stjórn með ábyrgð fyrir Alþingi. Þetta væri það, sem
þjóðin vildi fá, en hún yrði að fela fulltrúum sínum, hvernig þeir
kæmu þessu fyrir. Þjóðin í heild sinni gæti eigi skipt sér nema
af aðal „principinu“, þingið yrði að fjalla um einstök atriði.
Um aukatillögu nefndarinnar sagði framsögumaður, að sumir
nefndarmenn hefðu viljað herða betur á henni, en aðrir fara vægar
út í það. Nefndin hefði þrætt þann veginn, sem allir hefðu komið
sér saman um, að skora ekki skilyrðislaust á minnihlutamenn að
leggja niður þingmennsku, heldur væri skorað á þá að gefa kjós-
endunum viðunandi loforð um að vera með málinu framvegis, en
leggja ella niður þingmennsku. Með þessu væri mjög vægilega farið
í málið. „Enda vildi nefndin fremur laða minnihlutamenn en hrinda
þeim frá sér.“
Um aðaltillögu nefndarinnar töluðu auk framsögumanns fulltrú-
arnir Arnór Árnason, Jón Jakobsson og Einar Jónsson og Benedikt
Sveinsson, alþingismaður. Þeir tjáðu sig allir henni samþykka, en
stungið var upp á breytingu, sem framsögumaður hafði ekkert á
móti. Um aukatillögu nefndarinnar varð ágreiningur, einkum vegna
þess, að sumir fulltrúanna töldu réttara, að slík áskorun til alþingis-
manna kæmi frá kjósendum þeirra heima í kjördæmunum en frá
Þingvallafundi.
Fundarstjóri, Björn Jónsson, kvað hætt við, að minnihlutamenn
mundu síður telja sér skylt að gefa gaum slíkri áskorun frá Þing-
vallafundi, heldur en ef hún kæmi frá kjósendum þeirra hvers fyrir
sig. Hann stakk upp á að aukatillagan væri þannig orðuð:
„Fundurinn lýsir því yfir, að hann álítur æskilegt, að kjördæmi
þeirra þingmanna, er eigi fylgdu fram stjórnarskrárendurskoðuninni
á síðasta þingi, skori á þá að leggja niður þingmennsku sína, nema
þeir lofi því skýlaust að halda eftirleiðis hiklaust fram stjórnar-