Skírnir - 01.01.1969, Qupperneq 217
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
211
aukizt, en vildi eigi leggja styrkinn í hendur Dana. Arnór Árnason
deildi mjög á danska gufuskipafélagið og sagði Strandasýslubúa
ekkert gagn hafa af ferðum þess. Englendingar sigldu um hávetur
inn á Borðeyri, en dönsku gufuskipin þyrðu aldrei að sigla þangað
inn, ekki einu sinni um hásumarið. Húnvetningar hefðu ekki heldur
gagn af dönsku gufuskipaferðunum. Danir hefðu farið fram hjá
Skagaströnd í góðu veðri og menn beðið stórtjón af. Hann vildi,
að samið yrði við Englendinga eða Norðmenn, sem væru betri sjó-
menn en Danir. Friðbjörn Steinsson taldi tormerki á að semja við
Englendinga og Norðmenn, varði danska gufuskipafélagið og sagði,
að það hefði oft leyst verk sitt vel af hendi, en þegar dæmt væri um
strandferðir yrði margt að athuga, veður, ís, þoku osfrv. Hann
kvaðst vilja efla strandferðir eingöngu og sagði, að vér ættum að
takast þær á hendur sj álfir, en þá yrðum vér að veita styrk til þeirra.
Jón Einarsson kvaðst alls ekkert fé vilja veita útlendingum til gufu-
skipaferða kring um landið. Síra Jens Pálsson, fundarmaður, taldi,
þetta mál lífsspursmál fyrir landið, ekki sízt sveitirnar við Faxaflóa.
Hann deildi á danska gufuskipafélagið og vildi ekkert við það eiga
úr því að samningstími væri á enda. Taldi engan vafa á því, að
heppilegast væri, að landið ætti sjálft gufubáta til strandferða. Sagði,
að þetta mál stæði í mjög nánu sambandi við ályktunina um búsetu
kaupmanna, sem samþykkt var daginn áður. Við búsetu þeirra hér á
landi mundu innanlands viðskiptin aukast, og samgöngur þyrftu að
verða greiðari milli landshlutanna.
Fundarstjóri, Björn Jónsson, bar fram svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn skorar á Alþingi að taka gufuskipsferðamálið til sér-
staklegrar27 íhugunar og vill mæla einkanlega með gufubátsferðum
eingöngu með ströndum fram og innfjarða.“ Skúli Thoroddsen
gerði þá breytingartillögu, að í stað orðanna „að taka... íhugunar“
kæmi: „að veita framvegis ekkert fé til hins danska gufuskipafélags“.
Þessi breytingartillaga var samþykkt með 15 atkvæðum gegn 7 að
viðhöfðu nafnakalli. Já sögðu Andrés Fjeldsted, Árni Árnason,
Arnór Árnason, Guttormur Vigfússon, Jón Einarsson, Jón Hjörleifs-
son, Jón Jónsson frá Sleðbrjót, Jón Jónsson prófastur, Jón Sigurðs-
son, Páll Pálsson prestur, Pétur Fr. Eggerz, Pétur Jónsson, Skúli
Thoroddsen, Sveinn Brynjólfsson og Þorsteinn Benediktsson. Nei
sögðu Einar Jónsson, Friðbjörn Steinsson, Hannes Hafstein, Jón