Skírnir - 01.01.1969, Síða 168
162
BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON
SKÍRNIR
ist, ræðurnar að vísu í ágripum. Einnig eru í þessum skjalaböggli
kjörgögn fulltrúa, sem á Þingvallafund voru kosnir, fundargerðir
kjörfunda heima í héruðum, kjörskrár um kjósendur til Alþingis,
þar sem kosningar kjörmanna og fullírúa á Þingvallafund fóru fram
ofl. Á grundvelli skjalagagna í þessum böggli voru gefin út í bókar-
formi tíðindi frá fundinum, „Þingvallafundartíðindi 1888“. í þeirri
bók er að vonum nálega eingöngu sagt frá fundinum sjálfum, en
einnig getið meginreglna, sem farið var eftir um kosningar til hans.
Enn fremur er í bókinni skýrsla, samin af þriggja fundarfulltrúa
nefnd, um kosningar til Þingvallafundarins, tölu kjósenda til Alþing-
is í þeim kjördæmum, sem sendu fulltrúa á fundinn, eða í þeim
hreppum, sem kusu kjörmenn, tölu kjörmanna í hverju kjördæmi og
hve margir þeirra sóttu kjördæmisfund, sem í skýrslunni er nefndur
sýslufundur. Einnig greinir skýrslan, hve margir hreppar í hverri
sýslu kusu kjörmenn. Höfundar hennar láta þess getið, að tölurnar
í henni muni ekki alstaðar vera sem nákvæmastar, enda hafi ver-
ið „smágallar á einstöku kjörskrám og fundargerðum“. Vægt er orð-
að þegar gallar á kjörgögnum fulltrúa eru taldir smáir. Þau voru í
bezta lagi úr sumum kjördæmum, en mjög ófullkomin úr sumum.
Höfundar skýrslunnar hefðu mátt bæta þeirri afsökun við, að þar
sem þeir höfðu aðeins síðara fundardaginn til starfa gat ekki verið
tími til að beita fyllstu nákvæmni í samantekt hennar. Ef menn bera
tölur í þessari ritgerð saman við skýrslu þá, sem nú var getið, mun
sjást, að víða munar allmiklu. Hér er að sjálfsögðu farið eftir frum-
gögnum svo langt sem þau ná, en það hefur kostað tímafreka rann-
sókn.
Ekki mun mikið hafa glatazt af kjörgögnum, sem fulltrúar lögðu
fram á Þingvallafundi, nema helzt kjörbréf sumra fulltrúa. Þó hafa
úr sumum sýslum glatazt kjörskrár einstakra hreppa, sem fundinum
munu hafa borizt, og úr Norður-Múlasýslu vantar nú alveg kjör-
skrár í skjöl fundarins, en samkvæmt skýrslunni í Þingvallafundar-
tíðindum hafa verið lagðar fram á fundinum kjörskrár úr þeim
hreppum sýslunnar, sem kusu kjörmenn.
Auk þeirra gagna, sem nú voru talin, verður hér einnig stuðzt
við fréttir í blöðum.
Kosningum til Þingvallafundarins var þannig hagað, að einfaldar
eða beinar kosningar voru hvergi nema í Reykjavík. Annars staðar