Skírnir - 01.01.1969, Síða 187
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
181
manna munu ekki hafa talið á sig fyrirhöfn við að sannfæra þá full-
trúa, sem óákveðnir kunna að hafa verið, áður en þeir fóru til fund-
arins þar. Og vafalaust hafa þeir verið miklu fleiri, sem ekki þurfti
að sannfæra.
Eins og getið er hér að framan voru sumir þeirrar skoðunar,
að Þingvallafundurinn ætti að senda konungi ávarp, árna honum
heilla vegna 25 ára ríkisstjórnarafmælis hans og biðja hann að
leggja stjórnarbótarfrumvarp fyrir Alþingi 1889. ísafold sýndi fram
á það í ritstjórnargrein 18. ágúst 1888, að fjarstæða væri að Þing-
vallafundur sendi konungi ávarp um stjórnmál. Stjórnarlegri stöðu
konungs væri þannig háttað, að um slík málefni gæti hann ekki
svarað öðru en því, sem ráðgjafar hans væru samþykkir og vildu
framkvæma með honum. Meðan ráðgjafarnir væru hinir sömu og
1885 og skoðanir þeirra óbreyttar, gætum vér ekki fengið annað
svar frá konungi en vér fengum þá. Svo bættist hitt við, að Þing-
vallafundur hefði enga lagalega heimild til að senda konungi neitt
ávarp um stjórnmál. Alþingi eitt hefði lagarétt til þess. Hins vegar
taldi blaðið mjög vel til fallið, að hollustu og hamingj ukveðj a til
konungs vegna afmælis hans kæmi frá Þingvallafundi, og það ein-
mitt þeim Þingvallafundi, sem væntanlega mundi fylgja fram ein-
dreginni endurskoðunarstefnu í stj órnarskrármálinu.
Þingvallafundurinn var boðaður 20. ágúst, sem bar upp á mánu-
dag árið 1888. Þjóðviljinn segir, að menn hafi tekið að þeysa á
Þingvöll þegar að morgni sunnudags 19. ágúst, og væri orðið ærið
mannmargt að kveldi. ísfirðingar hafi orðið einna fyrstir á völlinn,
sjö í hóp og fylgdarmaður sá áttundi. Þeir höfðu tjald sér, sem
notað var til nefndarfunda meðan Þingvallafundurinn stóð. Borg-
firðingar undir forustu Andrésar Fjeldsteds höfðu einnig tjald sér.
Lýsir Þjóðviljinn tjaldi ísfirðinga svo, að á það væri málaður dreki,
en fyrir ofan hafi staðið með stóru letri „ísfirðingabúð“, hafi Björn
Árnason, gullsmiður á ísafirði, málaði hvort tveggja, „og þótti vel
gert“, segir blaðið. Fyrir framan tjaldið blakti fálkamerkið á hárri
stöng. Þjóðviljinn segir, að næst ísfirðingabúð hafi tjald Borgfirð-
inga þótt bera af öðrum að smekkvísi. Ekki er vitað um fleiri tjöld
einstakra héraða. Handa þingheimi öllinn voru reist tvö áföst fundar-
tjöld, sem til samans rúmuðu 300-400 manns. Þjóðviljinn skýrir svo