Skírnir - 01.01.1969, Page 185
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
179
en Ijóst er, að einungis lítill hluti kjósenda þar hefur tekið þátt í kjör-
fundi þeim, er hér um ræðir. Samkvæmt kjörskrá 1885-86 voru
kjósendur til Alþingis þar 234 en samkvæmt kjörskrá 1889-90
voru þeir 393.
Eins og fyrr segir voru kosningar utan Reykjavíkur til Þingvalla-
fundarins 1888 tvöfaldar eða óbeinar. Vegna þeirra þurftu kjós-
endur, að kjörmönnum einum fráskildum, ekki að fara lengra en á
kjörstað innan hrepps síns. Með þessu var mönnum gert miklu hæg-
ara fyrir en um kjörsókn til Alþingis eins og alþingiskosningum var
þá háttað. Kjörstaður var einn í hverju kjördæmi, og þangað urðu
allir að sækja kjörfund ef þeir vildu neyta kosningarréttar síns, en
ferðin á kjörstað og heim aftur skipti víða dagleiðum eins og sam-
göngur voru, þegar allt var farið á hestum. Til kjörmannakosninga
vegna Þingvallafundar þess er hér um ræðir, þurftu menn víða ekki
einu sinni að gera sérstakar ferðir heiman frá sér, þar sem í mörg-
um, ef ekki flestum kjördæmum, var hyllzt til þess að halda kosning-
arfundi kjörmanna að afloknum manntalsþingum eða hreppaskilum,
en þá var talið sjálfsagt, að allur þorri bænda sækti manntalsþing, og
margir þeirra komu einnig til hreppaskila. I flestum þeirra kjör-
dæma, sem í skjölum Þingvallafundar eru svo mikil kjörgögn úr, að
nokkurar reiður megi á henda, er auðséð, að meiri þátttaka hefur
verið í hinum óbeinu kosningum til hans en alþingiskosningunum
næst á undan, sem voru árið 1886. Mestu munar í Borgarfj arðar-
sýslu. I alþingiskosningunum þar 1886 greiddu 44 kjósendur at-
kvæði, en 172 tóku þátt í kj örmannakosningum 1888. í Mýrasýslu
var hka mikill munur. Þar neytti 61 kjósandi atkvæðisréttar 1886,
en 121 tók þátt í kjörmannakosningum 1888. í báðum þessum kjör-
dæmum voru kosningarfundir kjörmanna haldnir að afloknum
manntalsþingum eða í raun og veru í framhaldi af þeim. Sýslumaður
beggja sýslna, Sigurður Þórðarson, eða skrifari hans, Þórður Lár-
usson, héldu manntalsþingin, en sá þeirra, sem slíkt þing hélt,
stýrði einnig kosningarfundi kjörmanna, sem settur var þegar er
manntalsþingi var lokið, og staðfesti kj örbréf þeirra með undirskrift
sinni. Eina sveitakjördæmið, þar sem víst er, að færri tóku þátt í
undirbúningi að Þingvallafundi 1888 en alþingiskosningum 1886,
er Austur-Skaftafellssýsla, og munar þó litlu. Þeir, sem neyttu kosn-