Skírnir - 01.04.1991, Page 160
154
HELGA KRESS
SKÍRNIR
slúðri hennar fylgt eftir af hvöt Guðrúnar þar sem hún særir bræður
sína og Bolla við karlmennsku þeirra. Leggja þeir af stað til hefnda og
sitja fyrir Kjartani á þeim stað og tíma sem Þórhalla hafði fyrir sagt.
XI
Það er ekki einungis að slúður í Islendingasögum hafi áheyrendur,
heldur eru mörg dæmi þess að það sé beinlínis sviðsett. I Laxdælu
horfir Þorkell á Hafratindum á þá Bolla sitja fyrir Kjartani og hæðist
að smalasveini sínum sem vill vara Kjartan við:
„Þegi skjótt,“ segir hann: „mun fóli þinn nökkurum manni líf gefa, ef
bana verðr auðit? Er þat ok satt at segja, at ek spari hváriga til, at þeir
eigi nú svá illt saman, sem þeim líkar; sýnisk mér þat betra ráð, at vit
komum okkr þar, at okkr sé við engu hætt, en vit megim sem görst sjá
fundinn ok hafim gaman af leik þeira [...].“ Ok varð svá at vera, sem
Þorkell vildi. (152)
Þetta verður smalasveininum óbærilegt, og einkum vegna þess að
Þorkell sviðsetur atburðinn og gerir úr honum karnival:
Hann [smalasveinninn] mátti aldri tala til Kjartans, svá at Þorkell væri
hjá, því at hann mælti jafnan illa til hans ok kvað hann verit hafa hvítan
mann ok huglausan, ok hermði hann opt eptir, hverneg hann hafði við
orðit áverkann. (160)
Smalasveinninn ber söguna í Þorgerði móður Kjartans sem hvetur
syni sína til hefnda, ekki fyrst og fremst þess að Þorkell skuli hafa
hylmt yfir og neitað að vara Kjartan við þeim Laugamönnum, heldur
að hann skuli hafa gert sér „gaman ok skemmtan af viðskiptum þeira,
en hefir síðan lagt til mörg óvingjarnlig orð“ (160). Synirnir fara af
stað og taka hús á Þorkeli: „var Þorkell leiddr út ok drepinn, ok varð
hann ódrengiliga við sitt líflát“ (161). Slúðrarinn og eftirherman bregst
ókarlmannlega við.
I Njálu er slúður beinlínis sviðsett með leikurum sem leika slúðrið
fyrir framan hlæjandi áhorfendur. Er það slúðrið um misheppnaðar
samfarir Hrúts við Unni konu sína og málaferlin vegna þessa á þingi.