Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 87
Sjálfum finnst mér að tala megi um sálminn sem sögulegan sálm sem
sýni í senn ákveðinn skyldleika við angurljóð lýðsins og Síonarljóð.
Ástæðulaust er þó að reyna að þvinga hann inn í flokkunarkerfi sem hann
fellur illa að.
Aldursgreining
Sérstaða sálmsins felst einkum í því að hann er sá eini meðal sálma Saltar-
ans sem fræðimenn eru að heita má sammála um að unnt sé að aldursgreina
með nokkurri vissu. Oíkt öllum öðrum sálmum Saltarans tengist þessi með
býsna skýrum hætti ákveðnum tíma, stað og atburðum.
Sálmurinn er yfirleitt talinn vera saminn á tímabilinu 537 f.Kr. til 515
f.Kr. Það breytir því þó ekki að B. Duhm (1847-1928) taldi hann vera elsta
sálm Saltarans8 en Svíinn I. Engnell (1906-1964) taldi hann á hinn bóginn
vera hinn yngsta.1' Babýlónska útlegðin er augljóslega að baki (sbr. „þar sát-
um vér og grétum“).'° Á hinn bóginn sjást engin merki þess að musterið sé
risið að nýju (515 f.Kr.)
Kraus telur að v. 8 sýni að babýlónska stórrfkið sé enn til staðar." Sú
ályktun er þó ónauðsynleg þvf að Babýlón hélt áfram að vera borg í heims-
veldi Persa eftir fall babýlónska ríkisins og naut meira að segja talsverðrar
hagsældar undir mildilegri stjórn Kýrusar Persakonungs.
í frásögn Sanheribs Assýríukonguns af umsátri hermanna hans um Jerúsal-
em kringum 701 f.Kr. er getið um að Hiskía hafi sent honum bæði karlkyns og
kvenkyns tónlistarmenn að gjöf.12 Anderson telur líklegt að höfundur þessa
sálms hafi hlotið svipað hlutskipti.13 Þegar sálmurinn var skrifaður var höfund-
urinn hins vegar ekki lengur í Babýlon. Vers 7 bendir, eða gæti a.m.k. bent, til
þess að hann hafi sjálfur upplifað eyðingu Jerúsalem. Það bendir síðar ótvírætt
til þess að sálmurinn hafi verið ortur ekki seinna en tuttugu árum eftir að út-
legðinni lauk því mikið lengur en svo hefur höfundur hans varla geta lifað hafi
hann orðið vitni að falli Jerúsalamborgar. Það kemur og heim við röksemdina
8 B. Duhm 1899, s. xix.
9 I. Engnell 1945, s. 176, n. 2.
10 Langflestir fræðimenn eru þessarar skoðunar.
11 H-J.Kraus 1993, s. 501.
12 A.A. Anderson 1981, s. 897.
13 Fjölmargir fræðimenn, þeirra á meðal J.L. Mays, hafa látið svipaða skoðun í Ijós og haldiö því fram að
höfundur sálmsins hafi verið tónlistarmaður við musterið í Jerúsalem þegar Babýlóníumenn eyddu borg-
ina og fluttu stóran hluta íbúanna í útlegð. Ekki er það ósennilegt þó að því verði ekki slegið föstu.
85