Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 106

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 106
ný messusöngsbók. Þessi bréf eru hin merkustu og varpa skýru ljósi á þróun þess sem varð með sálmabókinni 1801. Þar kemur fram að Magnús hefur ver- ið að bíða eftir lista frá séra Markúsi um sálma til að hafa í nýju bókinni. Hann segist vera búinn að fá tillögur frá mörgum, og viti reyndar að Hannes biskup hafi sent prófastinum lista með brúklegum sálmum. Nú verði að ákveða með hvaða hætti skuli gengið til verks. Hann er þeirrar skoðunar að fínna þurfi milliveg milli algjörrar umbyltingar og varðveislu hins gamla, vegna þess að enginn sé reiðubúinn fyrir svo róttæka breytingu sem hann telur að þyrfti. Hann telur sjálfsagt að kasta burt öllum messuliðum sem ekki séu sálmar enda verði þeir ekki sungnir nótnalaust og prentverkið geti ekki prentað nótur. Þar að auki sé hann þeirrar skoðunar að þessir messuhlutar hafi sjaldnast verið sungnir eftir nótunum og aðeins fáir kunni að syngja eftir nótum yfirleitt. Að auki telur hann sjálfgefið að ef þessir söngvar yrðu prentaðir nótna- laust „myndu allir grípa fram gamla Grallarann sinn, sama hversu fúinn hann væri og ríghalda sér í hann og enginn keypti nýju bókina."24 Ennfremur segir hann að í þessu efni sé ekkert undanfæri þar sem messu- formið eigi að vera eins í öllu danska ríkinu. Þá gerir hann vandlega grein fyrir hugmyndum sínum um hið nýja messuform. í ýmsum greinum gengur hann þar lengra en hin endanlega niðurstaða sem birtist í sálmabókinni 1801 gerði, en í öðrum greinum vill hann ganga skemra. Til dæmis vill hann halda messujátningunni stóru sem kennd er við Nikeu og Konstantinopel.25 I svari prófastsins kemur glögglega fram sá skilningur að þeir Magnús eru hinir bestu samherjar í upplýsingu þjóðar og kirkju. Öflugasta tækið i þeirri baráttu er prentverkið og ineð þeirri leið ætla þeir að færa guðsþjón- ustuna í nútímabúning. Um hugmyndir Magnúsar um messuna segir hann ekkert nema allt gott, en hefur vara á með aðferðina. Þar finnst honum að það sé varla hægt að ganga alveg fram hjá biskupunum og hann efar að þeir séu á sömu skoðun og Magnús. Þar að auki telur hann að prestarnir mun enn síður samþykkja breytingar á kirkjusiðum en á sálmum. Hann gerir því að tillögu sinni að bíða með útgáfu bókarinnar þar til búið sé að útvega tilskipun frá Kanselínu þess efnis að hreinsa skuli og laga til í messusiðum og sálmasöng á íslandi. Síðan skuli hið nýja messuform fyrir- skipað. Ef þetta gangi ekki eftir telur hann að bíða skuli með breytingar á messuforminu. 24 Lbs.286.4to, 10 25 Lbs.286.4to, 10-14 104
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.