Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 113

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 113
hugtakið og íslensk orð. Hér víkur hann að umfjöllun minni á bls. 43 í riti mínu en virðist hafa yfirsést að ég tek málið aftur til umræðu í sambandi við þáttaskil um 1630 á bls. 327 og vísa þá sérstaklega til umfjöllunar Lofts Guttormssonar um þetta í Kristni á íslandi. Hjalti finnur að því (bls. 121) að ekki skuli tekið ‘fullt tillit’ til rita sem hann hefur staðið að og eru ann- ars vegar bindi í ritverkinu Islensk þjóðmenning og hins vegar fyrmefnt Kristni á Islandi. I umfjöllun minni um ‘reformasjón’ er etv. komið dæmi um það að hans mati. En ég tel mig taka mikið tillit til frumlegrar og athygl- isverðrar orðanotkunar Lofts um orð á íslensku fyrir ‘reformatio’ eða ‘reformasjón’. Um það notar Loftur öll orðin, ‘siðbót’, ‘siðskipti’ og ‘sið- breyting’, en ég held mig við orðið ‘siðbreyting’ eingöngu. Ég áskil mér rétt til að hafa eigin skoðanir á því hvað sé heppilegast um þetta og fylgi sann- færingu minni. Hjalta á að vera fullkunnugt að ég ritaði rækilega um skrif Lofts í rit frá árinu 2001 sem nefnist Kristni á íslandi og geymir efni frá tveimur útgáfumálþingum um ritverkið Kristni á íslandi. Framlag mitt í um- ræddu riti nefnist einmitt Siðskipti, siðbót og siðbreyting.2 Um notkun orðs- ins siðbreyting í Sögu íslands er fyrst til að taka að um 1980 varð töluverð umræða um það hvort æskilegt væri að almennt yrði tekið upp orðið ‘sið- bót’ fyrir ‘siðskipti’ enda hefði ekki verið skipt um sið um 1550.3 Jónas Gíslason vildi taka upp ‘siðbót’ í fyrirhuguðum kafla sínum í Sögu íslands en að samkomulagi varð með þeim Sigurði Líndal ritstjóra að nota orðið ‘siðbreyting’. Jónas féll frá og kom í minn hlut að fjalla um siðbreytingar- tímann og var eins konar ritstjómarstefna að ég notaði orðið ‘siðbreyting’. Hjalti túlkar orð mín þannig að ég þykist vera að boða einhverja nýjung með þessari orðanotkun en ekki er það svo, orðið ‘siðbreyting’ er td. notað í þiðja bindi af Sögu íslands sem út kom 1978.4 Stefna ritstjóra Sögu íslands var þannig að nota ekki orðið ‘siðskipti’ heldur ‘siðbreyting’ og var eins konar málamiðlun. Mér þykir þó líklegt að ritstjóri hefði fallist á að taka upp orða- notkun Lofts ef ég hefði viljað taka hana upp. í fyrmefndu verki frá 2001 2 Helgi Þorláksson: „Siðskipti, siðbót og siðbreyting.“ Kristni á fslandi. Útgáfumálþing á Akureyri 15. apríl 2000 og í Reykjavík 23. október 2000 (Akureyri & Reykjavík 2001), 125-31. 3 A þingi um Lúther árið 1983 talaði Heimir Steinsson fyrir þessu en taldi þó að eðlilegt væri að ræða um siðbyltingu eins og Guðbrandur Jónsson gerði, amk. fyrir fyrstu áratugina fram að tíma Guðbrands bisk- ups, sbr. „Samfélagsáhrif siðbótarinnar." Lúther og íslenskt þjóðlíf. Ritstj. Gunnar Kristjánsson og Hreinn Hákonarson (Reykjavík 1989), 104. Gunnar Kristjánsson notar í sama riti „siðbót“ um langtíma- ferlið, sbr. „Marteinn Lútherog Islendingar", 10-11. 4 Bjöm Þorsteinsson, Sigurður Líndal: Lögfesting konungsvalds. Saga Islands III. Ritstj. Sigurður Líndal (Reykjavík 1978), 33. 111
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.