Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 135

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 135
Fyrsti kafli bókarinnar ber heitið A Hole in the Heavens og hefst á grein- argerð um Tímeus eftir Plato. Tímeus var heimspekingur sem talar í bókinni fyrir hönd Platos og gerir grein fyrir uppruna og gerð alheims. Sjónin er grundvöllur þessarar heimsfræði vegna þess að hún gengur út frá því að orð og hugtök heimspekingsins byggi á því sem hann sér. Heimsfræðingar lesa enn þessa fomu bók um alheiminn þar sem segir að himnamir og tíminn hafi orðið til á sama augnabliki og ef annað leysist upp þá hverfur hitt líka. Þessi gamla heimsfræði gerir ráð fyrir himintunglum sem fara um brautir sínar og gerir grein fyrir því að himnarnir eru fastir og skipulagðir eins og náttúran og samfélagið - og hugsun mannsins (heimspekingsins). Gordon Lathrop leiðir saman heimsfræði Tímeusar og Markúsarguð- spjall í frásögninni af því þegar Jesús læknar blinda manninn sem ávarpar hann með bæninni: „Davíðs sonur, Jesús, miskunna þú mér.“ Hver er þessi blindi beiningamaður? Jú það er enginn annar en Bartímeus sonur (af ætt) Tímeusar. Hann hafði engar forsendur til að lifa í þeim heimi sem heim- spekin hafði skilgreint og hrópaði á Jesú og bað hann um að gefa sér sjón- ina. Þeir sem fá þá sjón sem Guð gefur geta séð í gegnum alla heimsfræði og hugmyndastefnur. Litúrgían er skapandi líf, segir höfundur, líf sem Kristur gerði mögulegt í dauða sínum og upprisu og það snýst um þrennt: skímina í vatninu, sakra- mentið við borðið og orðið á safnaðarsamkomunni á sunnudögum. Grein- ing hans sýnir á mjög sannfærandi hátt að þessi lykilatriði kristinnar trúar og safnaðarlífs eru nátengd því hvernig við hugsum um umhverfi okkar, annað fólk, náttúruna, dýrin og alheiminn. Vanafesta, eigingirni og skortur á ímyndunarafli sem víða má merkja í kirkjunni hefur lokað á þessi lífrænu tengsl og höfundur gefur góð ráð um það hvemig kristinn söfnuður getur endumýjað þau í helgihaldinu og þjónustunni við náungann í heiminum. Höfundur sviptir hulu vanans af lifandi tengslum helgihaldsins við dag- legt líf, við afstöðu mannsins til náttúrunnar og við hugmyndir hans um al- heiminn. Guð elskaði heiminn og hann gaf son sinn og hann frelsar ekki að- eins sálir manna heldur einnig heiminn allan. Gordon Lathrop sýnir fram á með óyggjandi guðfræðilegum rökum að litúrgían er líftaug safnaðarins og hana má aldrei loka inni og miða við fyrirfram skipulagðan heim útvalinna. Litúrgían er öllum opin, hún gefur von, kraft og líf um leið um leið og hún felur í sér og undirstrikar ábyrgð safnaðarins og einstaklingsins. Litúrgían tengir staðbundinn veruleika við sjónarhorn heimsfræðinnar og í kristnu samhengi merkir þetta að Guð er skapari himins og jarðar. Höfundur gefur góð ráð um fyrirkomulag sunnudagssamkomunar, skímarinnar, máltíðar- innar og annars helgihalds í söfnuðinum til þess að krafturinn í þessum gjöf- 133
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.