Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 136

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Side 136
um skili sér út í samfélagið og móti heimsmyndina. í litúrgíunni verða lík- ingarnar raunverulegar og táknin lifna við. Samkoman á sunnudögum stað- setur söfnuðinn í tíma og rúmi sem litúrgían gefur ákveðið inntak og stefnu. Kristur fæddist í þennan heim og söfnuðurinn er ábyrgur gagnvart Guði hér í heiminum og aldrei í einhverjum óskilgreindum sértækum tíma og rúmi. Helgihaldið tekur mið af gangi himintunglana en það er vilji Guðs sem markar stefnuna. Tákn og goðsögur sem víða má finna stað í trúarbrögðum heims eru afbyggð og endurbyggð vegna þess einstaka atburðar að Guð birtist í heiminum sem maður - konungur, en samt þjónn, dómari sem ekki dæmdi. I litúrgíunni brýtur góður og skapandi kraftur Guðs sér leið í gegn- um öll hagsmunasamtök og heimskerfi þar sem þau hafa stirðnað í sjálf- hverfri þjónustu sinni. Höfundur fjallar á afar sannfærandi hátt um þá náttúrusiðfræði sem felst í heilagri máltíð við borðið. Sakramentið er raunveruleg máltíð sem fólk kemur saman til að taka þátt í og nærast af. Um leið og við þökkum fyrir matinn biðjum við þess að enginn þurfi að svelta. Hann mælir með því að nýbakað brauð sé haft á altarisborðinu. Allir eru velkomnir, en þeir sem þiggja skoði sinn innri mann og sættist við náunga sinn áður. Vitund ein- staklingsins skírist í samfélaginu. Andinn gefur trúna og þrekið til sjálfs- gagnrýni og aga. Þeir sem koma taki með sér svo að það sé nóg til handa öllum og fari ineð með það sem eftir er til þeirra sem ekki gátu komið. Brauðið, vínið og vatnið eru ekki aðeins tákn heldur veruleiki - raunveru- legt efni - hin góða sköpun Guðs sem viðheldur lífinu og endumærir ekki bara andann heldur einnig líkamann. Litúrgían tekur alltaf efnið og lík- amann með í reikninginn og þetta minnir okkur á að við sem borðum brauð- ið eigum að fara út í náttúruna og út á akurinn og huga að uppskerunni og bjarga henni. í hvert skipti sem kristinn maður tekur þátt í þessari athöfn er skaparinn að minna hann á mikilvægi þess að vemda umhverfið og nýta náttúruauðlyndir á skynsamlegan hátt og hann bendir okkur sömuleiðs á að neysla okkar má ekki skaða aðra. Litúrgían á sér alltaf stað í ákveðnu menningarlegu og félagslegu sam- hengi en það takmarkar hvorki áhrif hennar né gildi. Hún miðar allt við Krist og þess vegna er hið óvænta á næsta leiti, ríkjandi ástand er alltaf til endurskoðunar þar sem lifandi helgihald er fyrir hendi. Himnamir opnast hvenær sem er. Rödd heyrist sem segir: „Þessi er rninn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ Runninn stendur í ljósum logum en brennur ekki. Það er best að við förum úr skónum því staðurinn sem við stöndum á er heilög jörð; náttúran er ekki okkar verk, ekki okkar eign. „O smakkið og sjáið að Drottinn er góður.“ Þannig syngur safnaðarfólk- 134
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.