Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 125

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 125
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 4 125 gefið út til þess að villa um fyrir manneskjunum, gera þær heimskar, illa inn­ rættar og hverja annarri líkar. Það sem snertir við manni með nokkuð óvenju­ legum hætti kemur ekki lengur út að heitið getur“ (122–123). Kommarnir og íhaldið Pólitísk saga Ragnars er hin merkilegasta. Í bók Jóns Karls er gripið á henni hér og þar en aðferð höfundar gerir hana mjóslegnari og slitróttari en efni standa til. Hér og þar sjáum við, einkum af vísunum í bréf til Bjargar eiginkonu Ragnars frá fjórða áratugnum, að Ragnar var á þeim tíma afar sjaldgæfur pólitískur fugl: kapítalisti og kommúnisti. Aðdáandi Einars Olgeirssonar, sam­ starfsmaður Kristins E. Andréssonar í bókaútgáfu. Hann veltir því fyrir sér eins og Líu Sjaó­sjí í Kína í frægu bókarkveri, hvað það þýði „að vera góður kommúnisti“ og svarar sér á þennan veg: „Það heimtar fórnir, alvarlega vinnu og skilyrðislaust starf“. En á dögum Nóbelshátíðar er þetta liðin tíð, Ragnar hefur fyrir löngu fjarlægst þessar hugmyndir, finnst kommúnisminn hið versta böl og setur reyndar allan sósíalisma undir sama hatt og spíritisma – hvoru­ tveggja er „barnaleg ósk sem menn heimta að gera að veruleika“ (174). Og eins og síðar verður á minnst, finnst honum beinlínis „óhugnanlegur óþefur“ (241) af ýmsu því sem Nóbelsskáldið skrifar um það leyti um heimspólitík. Hér er stökk stórt milli bakka sem hefði mátt reyna að brúa betur í bókinni. Að vísu er komið inn á það að Ragnar er hjá hægrimönnum grunaður um græsku, um að vera hallur undir kommana – um leið og kommar telja hann liðhlaupa sem hafi gengið í björg hjá íhaldinu til að standa betur að vígi í bönkum. Hvorutveggja ber hann af sér í bréfi til Bjarna Benediktssonar sem vitnað er til (308). En kannski er tölvert til í báðum ásökunum! Einkum ef við viljum taka mark á því að listir og bókmenntir séu „haldreipi og lífsfylling“ Ragnars eins og hann komst að orði í viðtali í Eimreiðinni árið 1975 við væntanlega leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í anda og verki, Davíð Oddsson og Hannes H. Gissurarson. Pólitíkin er Ragnari þá ekki síst tæki til að fylgja eftir þessari kenningu um „haldreipi“ nútímamannsins. Honum er „hlýtt til kommanna“ sem einstak­ linga, segir hann í bréfi til Matthíasar Johannessen (MJ 370) og í Eimreiðarvið­ talinu rétlætir hann rauðar æskusyndir með því að segja að fyrr á árum hafi mörkin ekki verið „eins glögg og nú milli sósíalista og fólks með aðrar pólit­ ískar skoðanir.“ Þetta hljómar einkennilega – voru menn ekki í hatrömmu stéttastríði fyrr á tíð? En útskýring Ragnars er þessi: „Við vorum allir húman­ istar og það laðaði suma að sósíalismanum að kenningar hans voru mannlegar.“ (EIM 187). Ragnar trúir á snillinga eða kannski öllu heldur á snilldina – en hann er ekki elitísti. Hann líkist ekki frænda sínum Þórði Sigtryggssyni sem sagði: hvað er varið í að njóta lista og bókmennta ef hvaða drull sem er getur gert það líka? Ragnar er jafnaðarmaður í menningarpólitík. Hann vill breiða út fagnaðarer­ indið. Hann vill bæði ala upp góða tónlistaráheyrendur og koma á fót sinfón­
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.