Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 135

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Síða 135
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 4 135 að erindi þeirra. Eins og kunnugt er var Matthías geysilega valdamikill maður í íslensku samfélagi um nærri hálfrar aldar skeið sem ritstjóri áhrifamikils fjöl­ miðils. Hann hætti í því starfi þegar hann varð sjötugur fyrir áratug en hefur síðan iðulega látið í sér heyra, til dæmis á síðum þessa tímarits en þó fyrst og fremst á netinu og í sínum gamla miðli, Morgunblaðinu. Við höfum fengið skýr skilaboð frá honum um ógeð hans á þróun íslensks samfélags, græðgis­ svæðingunni, frekjunni, tillitsleysinu í þeim nýríku. En hvaða skilaboð vill hann að ný ljóð sín beri til gamalla og nýrra lesenda? Komið er haust Fyrst verða fyrir lesanda skilaboð um að skáldið sé orðið gamalt. Mörg ljóð fjalla um ellina að einhverju eða öllu leyti. Eitt hið sterkasta stendur fyrst í Bók I og er nafnlaust eins og mörg áhrifamestu ljóð bókarinnar: Komið er haust í hjarta mitt senn hættir það að slá, bregður fyrir bliki af brýndum ljá, einhver heldur á vopninu sem vofir yfir mér. Veit samt ekki hver. Þó að ellin sé algengt yrkisefni fylgir þessi angistartónn því ekki alltaf. Matt­ hías hefur um of margt að hugsa; hugur hans er hreinlega alltof lifandi og virkur til að festast í möskvum efans þó að þeir slæði stundum eftir honum. Strax næsta ljóð, „Eftir uppskurð“, er mun bjartsýnna. Það þarf ekki að kvíða dauðanum því ferðinni er heitið „á fund þeirra vængja / sem flögra við lauf­ sólarþakið“ (10). Síðar í bókinni nýtur hann fylgdar hans sem hann trúir fyrir framtíð sinni („Fylg þú mér“, 31) og „felur anda sinn þeim sem sólina / skóp, jörð og upphimin“ („Nýtt landnám“, 66). En þó að Matthías gefi oftast í skyn að hann mæti dauðanum (og guði sínum) af stillingu er hann ekki sammála Kristjáni Fjallaskáldi sem „ákallar / aldurtilann sem lækni sárin“ (65): Nei, að njóta þeirra naumu sárlöngu stunda og fáeinu geisla sem gefast, það græðir sárasta uppgjör sem annars væri aðeins tilbúið líf og trú til að efast.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.