Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 137

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Side 137
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 4 137 Við erum ekki nema hálfmenni ef við glötum arfi liðinna kynslóða sem fólginn er í bókmenntum og listum. Um þetta vitna kannski öll ljóð þessarar nýju bókar á einn eða annan hátt, en ljóðið sem situr fastast í minninu að lestri loknum er „Þél höggr stórt fyr stáli“ (105). Línan er úr dróttkvæðri vísu eftir Egil Skallagrímsson (sem skýtur upp kollinum oftar í bókinni) en hana orti hann þegar hann hafði reist Eiríki konungi og Gunnhildi drottningu níðstöng „svo að landvættir færu villar vega, meðan þau stjórnuðu Noregi“. Og Matthías óskar þess að hann kynni skil á rúnum eins og Egill því hann „hefði viljað beita þeim gegn auðvaldinu og landvættum þess, / sýktu samfélagi …“ En ekki aðeins erum við án rúnagaldurs, við eigum ekki einu sinni í önnur hús að venda „þegar éla meitill og hafþjölin mikla sverfa óþyrmilega um stefni þjóðar­ skútunnar, svo að vitnað sé í klisjukennda myndlíkingu stjórnmálamanna“. Þessi strengur minnir á „Hrunadansinn“, harðsnúinn ljóðabálk um feigðar­ flan peningamanna og ráðamanna sem Matthías birti í Morgunblaðinu árið 2006 en er nú kominn út á bók ásamt lestri Gunnars Eyjólfssonar á diski. Sögur Gamla testamentisins eru honum nærri þegar hann fylgist með hörmungum í Líbanon („Högl af himni“, 106), en þegar jörð skelfur í Pakistan er það Völuspá sem hann grípur til (150). Hann minnir á Samuel Beckett, Ezra Pound, T.S. Eliot, Solzhenítsyn, Kristján Fjallaskáld, vin sinn Stein Steinarr, Zweig og Balzac, Jónas, Grím og Feuerbach og Magnús á Hrauni og ótalmarga aðra, þekkta og lítt þekkta. En þetta eru áreynslulausar vísanir, Matthías gerir ekki kröfu til lesandans um að hann þekki þetta allt, bara að hann taki á móti opnum huga; fari kannski á netið og gái hver í ósköpunum þetta sé. Hann er heldur ekki að segja okkur að mæta þessum gengnu snillingum með andakt. Við eigum að virða þá, vissulega, en við eigum líka að vera gagnrýnin, velta verkum þeirra fyrir okkur, tala við þá gegnum tíma og rúm. Sérðu tunglið? Þriðja erindi þessara ljóða er að brýna fyrir lesendum að njóta náttúrunnar, horfa á hana á hverjum degi, fylgjast með því sem gerist frá degi til dags, jafnvel í borginni má heyra í fuglum, horfa á trén laufgast á vorin og missa laufið á haustin, fylgjast með litbrigðum Esjunnar. Dýrindis dæmi um þennan þátt er „Ágústveður í Laugardal“ (124). Meira að segja skordýrin fá sínar línur, ekki síst eftirlætisskordýr Matthíasar: „… og kónguló gengur við vef sinn að verki / og visnaðri bráð“ („Morgunljóð í gróandanum“, 127). Í ljóðabálknum fremst í Bók III, „Við eyjar blár“, býr hann til flókna myndhverfingu af ástinni með því að láta kónguló spinna „vírsterkan vef“ utan um tvo vængjaða einstaklinga: „tvær hugmyndir guðs / að einni hugmynd / um ást“ (162). Fjórða meginerindi þessarar bókar varðar einmitt ástina. Þegar þessi bók var í vinnslu stóð Matthías enn á tímamótum. Í apríl 2009 lést eiginkona hans og lífsförunautur eftir stutta sjúkralegu. Það er kannski óviðeigandi að segja frá því en þegar ég hugsaði um Matthías og Hönnu kom mér í hug atriði úr bresku bíómyndinni Notting Hill. Aðalpersónur myndar­
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.