Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Blaðsíða 69
H e t j a þ ú s u n d a n d l i t a o g h ö f u n d u r þ ú s u n d n a f n a
TMM 2014 · 4 69
Ég var ekki hár í loftinu þegar ég tók að heimsækja Bókina þar sem Snæi
stóð vaktina og iðulega gaukaði hann að mér hnýsilegu lesefni, þar á meðal
heftum af Basil fursta sem hann hafði flett á sínum tíma og haft lúmskt
gaman af. Ég endaði á því að safna Basil og var búinn að sanka að mér á að
giska 90% af útgefnum heftum þegar kynósa unglingsárin gripu í taumana
og ég seldi allt klabbið fyrir geypiverð til að mig minnir prófessors í eðlis
fræði fremur en stjörnufræði, með milligöngu frænda að sjálfsögðu. Þegar
táningaóróinn gekk yfir sá ég oft eftir safninu, en það er önnur saga og ekki
ýkja tragísk.
*
Hvað eiga eftirtaldir höfundar sameiginlegt? Peter Anker, Ellinor Bell,
Patricia Bennett, Mary Bright, Charles Bristol, Harold Chester, Dick Danner,
Jan Dorph, Phil Farwest, John D. Forster, Davis Gartner, George Griffith,
Mary Hamilton, Gustav Harder, Carl Hardner, Gustav Hardner, Lisa Hill,
Richard H. Hill, Richard M. Hill, Else Jensen, Erik Juul, Ole Klindt, Anne
Lykke, Kai Lynæs, John Marling, Christel Marner, Ann Marshall, Jan Miller,
James Morris, Jens Munk, Nikolaj Møller, Rex Nelson, David Parker, Ruth
Parker, Andreas Rasmussen, Robert Sterling, Erik Tønder, Werner Lili
og Richard Ørn. Jú, þessir nafnfögru karlar og konur eru öll tilbúningur,
skálkaskjól eins og sama mannsins, danska rithöfundarins Niels Meyn. Og
Meyn þessi var einmitt hinn nafnlausi höfundur Basils fursta.
Svo sem fyrr sagði vakti óviss uppruni Basils fursta forvitni margra. Ég
sperrti því eyrun þegar fram kom í útvarpsþætti árið 1994 að búið væri að