Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Blaðsíða 12
Þ o r va l d u r G y l fa s o n
12 TMM 2014 · 4
deilur um þetta mál og reiknaði með að þessar deilur myndu lognast út af
á endanum þegar flokkstjórnarliðið nennti ekki lengur að mæta á þing
flokksfundi og setja sig inn í öll mál, sem aftur mundi kalla á sérstaka
flokksstjórnarfundi til að ákveða línuna sem þingmennirnir ættu að fylgja
og fundi til að útskýra línuna fyrir þingmönnum og þannig áfram út í það
óendanlega.
Það kom líka fljótlega í ljós að við fjögur sem vorum í þingflokki Borg ara
hreyfingarinnar vorum síður en svo sammála um margvísleg grundvallar
atriði. Það var ekki skemmtilegt né hreint andrúmsloft í þessum litla hópi,
því miður, og loks kom þar að mér fannst mælirinn fullur og útséð um að við
gætum starfað sem samtaka heild. Þá gerðist ég um tíma óháður þingmaður
en þau þrjú sögðu skömmu síðar skilið við Borgarahreyfinguna og opnuðu
eigin rekstur undir nafninu Hreyfingin.
Þorvaldur: Þingmenn Hreyfingarinnar voru eins og þú traustir stuðn
ingsmenn nýrrar stjórnarskrár, eini flokkurinn, sem studdi kynningu frum
varpsins dyggilega í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012. Aðrir
flokkar sýndu málinu engan áhuga. Einn félagi minn í Samtökum um nýja
stjórnarskrá (SaNS) fékk leiðbeiningar hjá forsætisráðherra um, hvernig
orða mætti bréf samtakanna til forsætisráðherra og forseta Alþingis, oddvita
framkvæmdarvalds og löggjafarvalds, um stuðning við kynningu á stjórnar
skrárfrumvarpinu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna; bréfið var sent, og svarið
var þvert nei á báðum stöðum.
Þráinn: Þú segir tíðindi. Ég hafði reynslu af margskonar átökum og
ágreiningi úr þeim hópum sem ég hafði kynnst og unnið með gegnum
tíðina en óhreinlyndi á borð við það sem þarna kom upp á yfirborðið var
mér nýnæmi og vond og sár reynsla. Ég bjóst ekki við því að pólitík væri
mannbætandi en að mannskemmdir kæmu í ljós eftir svona stuttan tíma var
óþægileg áminning um að enginn sé annars bróðir (eða systir) í leik.
Það er reyndar rétt að ég geti þess að fyrsti stóri ágreiningurinn í þing
mannahópnum kom í ljós í sambandi við aðildarumsókn að Evrópu
sambandinu. Um Evrópusambandið var ekkert að finna í okkar stuttu
stefnuskrá en öll höfðum við í kosningabaráttunni talað einum rómi um
að við styddum aðildarumsókn og viðræður sem myndu leiða í ljós kosti og
galla aðildar og síðan myndi þjóðin sjálf taka upplýsta ákvörðun um framtíð
sína. Þessu höfðu sum okkar gleymt þegar kom að því að taka afstöðu til
aðildarumsóknar og þau höfnuðu aðildarumsókn og þar með því tækifæri
sem við höfðum öll talað fyrir, sem sé að þjóðin sjálf fengi tækifæri til að taka
upplýsta ákvörðun um sína eigin framtíð.
Þorvaldur: Hvort vegur þyngra í lífi þingmannsins, ánægjan yfir vel unnu
verki eða áreitið og óþægindin?
Þráinn: Ég tel að stjórn Samfylkingar og Vg sem tók við eftir hrun hafi
unnið mikilvægt björgunarstarf við mjög erfiðar aðstæður – eins og slökkvi
lið sem kemur á vettvang til að reyna að bjarga byggingu sem stendur í