Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 65
H e t j a þ ú s u n d a n d l i t a o g h ö f u n d u r þ ú s u n d n a f n a TMM 2014 · 4 65 deilir um margt spegli með Martin Beck skötuhjúanna sænsku Sjöwahl og Wahlöö, og boðaði hvað koma skyldi í íslenskum glæpasögum: Einmana og miðaldra fráskildir menn sem eiga í stríðum samskiptum við börn sín og umhverfi, gruflandi í glæpum sem tengjast oftast félagslegum meinum og eru fullir fortíðarhyggju, enda sjálfir félagsleg viðrini og nátttröll. Basil fursti var hins vegar langt frá því að hírast úlpuklæddur í blokk­ aríbúð, kaffærður í gluggabréfum. Ýjað var að því í heftunum að Basil væri rússneskur aðalsmaður, jafnvel náskyldur Nikulási II keisara, sem yfirgefið hefði föðurland sitt nauðugur eftir byltinguna 1917. Í auglýsingu á einu fyrstu heftanna sem út komu um Basil á frummálinu er honum lýst með hástemmdum hætti, í lauslegri snörun minni svohljóðandi: Hann heitir Basil fursti, meistari þúsund gerva, hinn tígullegi, hægláti heimsmaður. Um hann gengur sá orðrómur að móðir hans hafi verið drottning í stærsta ríki Evrópu, en enginn veit hið minnsta um hann í raun og veru, að því undanskildu að hann er ótrúlega auðugur og einar sér bera lystihallir hans vítt og breitt um veröld­ ina vitni um auðlegð sem hleypur nærri milljörðum. Hann er einmana maður og í augum hans býr djúpstæð alvörugefni. Sagt er að kona sú sem hann elskaði framar öllu öðru hér á jörðu í hreinræktaðri ástarþrá æskunnar hafi svikið hann, og af þeim sökum sé hann íhugull og ómannblendinn. Enginn veit hvort að þetta sé sannleikanum samkvæmt, en margt getur bent til þess. Því er einnig fleygt að heimili hans sé skemmtiferðaskipið stóra á heimshöfunum bláu, en það er ósatt. Hið raunverulega heimili hans er í sjóðheitum eyðimerkursand­ inum. Hundruð verkamanna hafa lagt hönd á plóginn við byggingu heimilsins og þegar það var tilbúið geymdi ævaforn pýramídi húsakynni sem teygðu sig frá efsta oddi pýramídans langt niður í jörðina. Heimilið er ríkulega útbúið og hlaðið öllum hugsanlegum þægindum og munaði nútímans, ásamt eigin síma­ og fjarskiptamið­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.