Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 6
A n d r i S n æ r M a g n a s o n
6 TMM 2018 · 3
haustkvíða. Hann veit ekki hvort hann hafi aflað nóg fyrir vorið, hann fær
skilaboð á símann um að Bitcoin hafi enn lækkað í verði. Orkuþörfin er að
vísu enn eins og orkuþörf Perú, en ekkert er öruggt í þessum heimi. Hann sér
að birtan frá ljósaskiltunum við Sports Direct er skærari en þau voru í sumar
og gnístið í nagladekkjunum hefur hækkað með hverjum deginum. Ljósin á
umferðarljósunum eru rauð. Forn viska segir honum að rautt ljós þýði stopp,
að fara ekki eftir þessum táknum getur þýtt bráðan bana. Hann stöðvar bílinn
og lítur til beggja hliða, nú er hrafn í uppstreymi við Deloitt turninn …“
Heimild: Ja.is: ,,Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði, Þorrasölum 11, 201
Kópavogi.“
IV Strákur fer í stríð
Ég opna blöðin og sé að Haukur Hilmarsson er týndur, að tyrkneskir fjöl-
miðlar segi að hann hafi farist í loftárás í Sýrlandi þar sem hann barðist með
frelsisher sýrlenskra Kúrda. Ég man eftir honum úr Kárahnjúkabaráttunni.
Ég dáðist að kjarki baráttumanna þar, fylgdist með Saving Iceland frá fyrsta
stofnfundi og fannst ég hálfgerður smáborgari, kjarklaus, hræddur. Ég var
óhræddur við að skrifa og segja mína skoðun en ég var of kjarklaus til að
fara í beinar aðgerðir, átti of mikið undir, afborganir, bíl og nýfætt barn. Saga
Hauks er önnur kvikmynd, ,,Strákur fer í stríð“. Frá Kárahnjúkum til Afrin.
Það hlustaði enginn á mótmælendur í búsáhaldabyltingunni fyrr en Haukur
og félagar komu með harðari og beinni aðgerðir sem þeir lærðu á fjöllum og
gegnum alþjóðleg tengsl. Það gerðist ekkert fyrr en alþingismenn urðu raun-
verulega hræddir. Saga breytinga í heiminum er ekki alltaf friðsamleg. Hún
er sjaldnast friðsamleg.
V
Hvernig á að fjalla um samtímann? Hvernig á að umbreyta stórum sam-
félagsmálum og takast á við þau í bók, á sviði eða í kvikmyndaformi? Það er
sjaldgæft að fara á kvikmynd þar sem allt, nánast bókstaflega allt í myndinni
er eitthvað sem maður var búinn að hugsa, ímynda sér eða kannast við á einn
eða annan hátt. Ég hef meira að segja átt fundi með leikstjóra myndarinnar
Kona fer í stríð þar sem við geymdum símana okkar inni í ísskáp (Benedikt
ólst upp í húsinu á móti bandaríska sendiráðinu og veit sínu viti). Þá voru
einhver tvö þrjú álver á sjóndeildarhringnum, Þjórsárver og önnur svæði
enn í bráðri hættu og við veltum fyrir okkur hvernig framtak bændanna
í Mývatnssveit gæti litið út á okkar dögum. Og þá fóru einmitt gegnum
hausinn allar þessar hugsanir. Hver hefur rétt fyrir sér, hvenær á að stíga
út fyrir hinar hefðbundnu leikreglur og hver er afleiðingin af því? Á Kára-
hnjúkum var njósnari gerður út frá Bretlandi, hann gekk í hóp umhverfis-
verndarmanna undir fölsku flaggi og misnotaði ungar stelpur. Erlendur
TMM_3_2018.indd 6 23.8.2018 14:19