Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Blaðsíða 104

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Blaðsíða 104
K o l b r ú n H a l l d ó r s d ó t t i r 104 TMM 2018 · 3 fulltrúa landshlutanna og þar með dvínaði aflið í list- og menningartengdu starfi. Þessa er getið hér í ljósi þess að BÍL hefur lagt sig sérstaklega eftir því að vekja áhuga stjórnvalda á að fjölga atvinnutækifærum fyrir listamenn utan höfuðborgarsvæðisins. Til marks um það er málþing sem haldið var í tengslum við leiklistarhátíðina Act alone á Suðureyri við Súgandafjörð 2017 og fjallaði um efnið. … ef lífæð aldarinnar er ekki upphaf sjálfs listaverksins, mun það aldrei öðlast alment gildi; hinsvegar upphefur þjóðin sérhvert listaverk þar sem hún finnur hjarta sitt slá … Þegar talið berst að málþingum og ráðstefnum er ekki úr vegi að gera í örfáum orðum grein fyrir hlutverki slíkra þátta í starfi BÍL, en í tengslum við aðalfundi Bandalagsins eru jafnan haldin málþing og á seinni árum hafa málþing um höfundarétt verið áberandi. Þau síðustu í þeim flokki hafa verið haldin undir yfirskriftinni „Lifað af listinni“. Þar hefur verið fjallað um starfsumhverfi listamanna með tilliti til höfunda- og flytjendaréttar, sem er flókinn og lagatæknilega snúinn réttur byggður á Bernarsáttmálanum, sem veitir höfundum listaverka og hvers konar hugverka ákveðna réttarvernd og er m.a. ætlað að tryggja þeim og flytjendum sanngjarnt endurgjald fyrir verk sín. Víðast hvar á Vesturlöndum skilar umtalsverður hluti tekna lista- manna sér gegnum innheimtukerfi höfunda- og flytjendagreiðslna. Það er því snar þáttur í starfi aðildarfélaga BÍL að fjalla um höfundarétt og tryggja framþróun hans í samstarfi við stjórnvöld. Á síðasta málþingi BÍL og sam- starfshóps höfundaréttarsamtaka um þessi efni var fjallað um mikilvægi þess að stjórnvöld setji sér sérstaka stefnu í málefnum höfundaréttar, sambærilega þeirri sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra gaf út 2016 um hugverka- réttindi. Vonir standa til að Höfundaréttarnefnd og Höfundaréttarráð taki við keflinu í umboði stjórnvalda og þess verði skammt að bíða að íslensk höfundaréttarstefna líti dagsins ljós. Slík stefna væri grunduð á menningar- stefnu stjórnvalda og yrði til hagsbóta fyrir listir og aðrar skapandi greinar. Ekki allra handa sérviskna, sem gánga undir nafninu einstaklíngshyggja og frumleiki, og miða einkum að því að gera listamanninn að „skrýtnum fiski“, heldur þess guð- móðs sem fæst af innilegu sambandi við þjóðarsálina, vildi ég óska og biðja íslenskum listamönnum … Hér hefur ekki verið minnst á fjölda mála sem BÍL hefur haft til umfjöllunar undanfarinn áratug eða svo, þar má nefna hugmyndir að evrópskri fyrir- mynd um hlutdeild listanna í þjóðarlottóinu, heiðurslaun Alþingis til lista- manna, sögulegar forsendur þeirra og tillögur BÍL um akademíu listanna. Ekki heldur samstarfið við norræn systurfélög eða Norrænu menningará- ætlunina sem er aflvaki samstarfs norrænna listamanna. En í stuttri grein þarf að stikla á stóru. Þeim sem vilja kynna sér til hlítar málefni Bandalagsins á seinni árum er bent á heimasíðuna www.bil.is en þar eru aðgengilegar allar ársskýrslur forseta sem lagðar eru fram á aðalfundum og eru til umfjöllunar TMM_3_2018.indd 104 23.8.2018 14:19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.