Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Blaðsíða 18
Á s d í s R . M a g n ú s d ó t t i r
18 TMM 2018 · 3
Ásdís R. Magnúsdóttir
Skrímslið og kakóbollinn
Fríða og Dýrið og önnur ævintýri kvenna
í frönskum bókmenntum fyrri alda
Þótt hlutur kvenna sé rýr þegar flett er í gegnum franska bókmenntasögu
má þar finna áhugaverð skáldverk eftir konur langt aftur í aldir. Undanfarin
ár hefur verið lögð talsverð áhersla á að draga fram hlut kvenna fyrri alda á
ritvellinum og hefur hin virta bókaútgáfa Honoré Champion í París ráðist
í útgáfur á verkum sem lengi vel hafa ekki farið sérlega hátt. Meðal þeirra
eru sendibréf kvenna, skáldsögur og ekki síst ævintýrasöfn, sem eru misvel
þekkt af lesendum í dag. Eitt bindið í því safni er helgað hinu fræga ævin-
týri um Fríðu og Dýrið. Ævintýri nutu mikilla vinsælda í bókmenntaheimi
Frakklands á 17. og 18. öld og margar konur spreyttu sig á þessu bókmennta-
formi sem á rætur sínar í sagnaarfinum en tekur á sig síbreytilegar myndir
í meðförum nýs flytjanda. Sagan um Fríðu og Dýrið er án efa eitt frægasta
verk franskra kvenna fyrri alda og enn virðist þessi átakanlega saga höfða til
lesenda og áhorfenda í þeim fjölmörgu endurútgáfum og endurgerðum sem
til eru: kvikmyndum Pathé-bræðra frá 1899 eða 1908, hinni frægu kvikmynd
Jeans Cocteau frá 1946, gerð Jurajs Herz frá 1978, Disney-teiknimyndinni
frá 1991, í gerð Davids Lister 2009, Christophes Gans frá 2014, Disney-kvik-
myndinni frá 2017, í smásögum Angelu Carter frá 1979 eða barnabókum, svo
eitthvað sé nefnt. Í þessari sögu, þar sem allt fer þó vel að lokum, mætir hin
unga Fríða örlögum sínum í líki skrímslis sem hún þarf að deila með höll,
umbera og elska. Sagan kom fyrst út í Frakklandi á árunum 1740–1741 en svo
aftur í endurgerðri og styttri gerð árið 1756, sem íslensk börn og ungmenni
gátu lesið sér til gagns og gamans strax í lok 18. aldar.1 Hér verður fjallað
um uppruna og nokkur einkenni þessa fræga bókmenntaverks og sagt frá
tveimur ólíkum gerðum sögu sem var alls ekki ætluð börnum þegar hún var
fyrst sett á blað.
Ævintýraritun í Frakklandi á 17. og 18. öld
Ævintýri hafa alltaf verið vinsæl. Þau hafa gengið frá manni til manns, frá
einni kynslóð til annarrar, á milli landa, tungumála og menningarheima og
tekið á sig ólíkar myndir, innan og utan bókmennta. Við tengjum ævintýri
gjarnan við börn og þegar fyrstu bækurnar ætlaðar börnum og unglingum
TMM_3_2018.indd 18 23.8.2018 14:19