Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Blaðsíða 94
N a d e z h d a M a n d e l s h t a m
94 TMM 2018 · 3
Nadezhda Mandelshtam
Síðasta bréfið
Gunnar Þorri Pétursson þýddi
Osíp Mandelshtam var handtekinn 1934 fyrir ljóð sem hann orti um Stalín og lést í
gúlaginu fjórum árum síðar Nadezhda geymdi allt sem eiginmaður hennar skrifaði
í kollinum og þegar Stalín var allur festi hún það á blað ásamt endurminningum
sínum.1 Hinstu samverustundir Osíps og Nadezhdu höfðu verið í sveitum Voronjozh
og bróðir skáldsins hét Aleksandr, kallaður Shúra.
– Þýð.
Þetta sendibréf komst aldrei á leiðarenda. Það var párað á tvö fánýt blöð.
Milljónir kvenna skrifuðu slík bréf – handa eiginmönnum, sonum, bræðrum,
feðrum eða einfaldlega vinum sínum, en lítið sem ekkert hefur varðveist.
Hvað eina sem bjargaðist gerði það fyrir kraftaverk eða tilviljun. Bréf mitt
varðveittist fyrir tilviljun. Ég skrifaði það í október árið 1938 en í janúar
komst ég að raun um að Mandelshtam væri dáinn. Bréfið endaði í tösku
ásamt öðrum pappírum og lá þar í hartnær þrjátíu ár. Það kom upp úr
krafsinu í síðasta sinn sem ég fór í gegnum þessi blöð, himinlifandi yfir hverju
varðveittu snifsi en að sama skapi sárt syrgjandi allan þann óbætanlega skaða
sem orðið hafði. Bréfið las ég ekki strax, það liðu nokkur ár …
22. 10. 1938
Osja, ástin mín í órafjarska! Hjartað mitt, mér er orða vant í þessu bréfi sem
ef til vill berst þér aldrei. Ég skrifa það í tómið. Kannski kemur þú til baka og
mín nýtur ekki lengur við. Þá er þetta það síðasta sem þú átt til minningar
um mig.
Osjúsha, saman vorum við eins og börn – og það var okkar gæfa. Rifrildin
og allt nöldrið, leikirnir sem við gátum fundið upp á og ástin á milli okkar. Ég
horfi ekki einu sinni til himins lengur. Með hverjum á ég að deila skýjunum
sem líða hjá?
Manstu fátæklegu krásirnar sem við drógum í vesæla hirðingjatjaldið
okkar? Manstu hvað brauðið var gott þegar það birtist eins og fyrir kraftaverk
og við deildum því á milli okkar? Eða síðasta veturinn í Voronjozh. Okkar
kátu fátækt og ljóðin. Ég minnist þess eitt sinn þegar við komum úr gufubaði
og höfðum keypt egg eða pylsur í matinn. Heyvagn ók hjá. Það var enn kalt
í veðri og ég að frjósa í frakkanum mínum (það átti fyrir okkur að liggja:
TMM_3_2018.indd 94 23.8.2018 14:19