Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 7
K o n a f e r í s t r í ð
TMM 2018 · 3 7
njósnari á Íslandi vann gegn umhverfisverndarfólki en ekkert gerðist, enginn
látinn sæta ábyrgð. Málið fellur niður og gleymist. Ég fylgdist með atburðum
í Gálgahrauni þar sem friðsamir borgarar komu sér fyrir úti í hrauni til að
sporna við eyðileggingu þess. Þarna voru kórstjórar, eftirlaunamenn, kenn-
arar og námsfólk. Einn daginn var stærsta grafa landsins mætt til þess að aka
alla veglínuna og eyðileggja allt svæðið formlega. Þetta var ekki í samræmi
við hefðbundna vegagerð. Það tíðkast ekki að senda gröfu á alla veglínuna
til að marka hana áður en vegurinn er lagður. Grafan var þarna í hernaðar-
legum tilgangi, hún var þarna til þess að ryðja burt mótmælendum, þetta
var einhverskonar blitzaðgerð, hernaðarleg aðgerð til að losna við þessa nátt-
úruverndarsinna. Með gröfunni fylgdi her lögreglumanna með línur sem
voru strengdar kringum fólk sem sat eða lá. Fólk fékk fyrirskipanir, hróp
og köll. Þeir sem ekki færðu sig voru handteknir. Ég sá einn vera við það að
missa buxurnar niður um sig, gleraugun hans brotnuðu. Hann var að sjá
eftir landi sem honum þótti vænt um og í ofanálag var hann niðurlægður
með valdbeitingu. Þetta var fasismi. Ég var reiður og langaði mest að grýta
helvítis gröfuna en ég gerði það ekki. Ég þurfti að sækja barn á leikskóla.
Ári síðar var ég kallaður til vitnis í héraðsdómi Reykjaness. Ég hafði aldrei
komið í dómssal. Ég sagði það sem ég sá. ,,Í Gálgahrauni sáum við fólk
beitt ofbeldi, niðurlægingu og fjárhagslegum óþægindum, fólk sem mót-
mælti eyðilegg ingu á náttúruverðmætum sem tengdust ekki atvinnutækifæri
heldur hreinum útgjöldum og tæknilegri útfærslu af hálfu Vegagerðarinnar. Í
húfi var náttúruperla, útivistarsvæði, sögulegar minjar og fyrirmyndir Kjar-
vals. Ég spurði hvort til væru lög um svona aðgerðir. Hvort framkvæmdaað-
ilar mættu haga sér þannig að venjulegt heiðarlegt fólk væri vísvitandi gert
að lögbrjótum til þess eins að gera þeim kleift að handtaka það. En réttarhöld
snúast ekki um samtal, ekki um það hvort vettvangur glæpsins hafi verið
hannaður fyrirfram, að fyrirfram hafi verið ákveðið að gera heiðarlegt fólk
að glæpamönnum. Mér sýndust réttarhöldin vera einhverskonar forrit. Já eða
nei? 0 eða 1? Hlýddi hann lögreglumanni? Já eða nei. Nei, þá er hann sekur.
Þá fær hann sekt.
VI
Lágflugsæfingar í tengslum við NORÐUR VÍKING 99
Dagana 19., 21., 22. og 23. júní eru ráðgerðar lágflugsæfingar
orrustuflugvéla á afmörkuðu lágflugssvæði yfir hálendinu í
tengslum við varnaræfinguna NORÐUR VÍKINGUR 99. 6.
Jagúar orrustuvélar breska flughersins og 4 F-15 orrustuvélar
bandaríska flughersins munu fljúga lágflugið.
(Heimild: „Lágflugsæfingar í tengslum við NORÐUR VÍKING 99.“ Fréttatilkynn-
ing frá utanríkisráðuneytinu nr. 057, 18. júní 1999 á www.utn.stjr.is)
TMM_3_2018.indd 7 23.8.2018 14:19