Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 12
S i g u r l í n B j a r n e y
12 TMM 2018 · 3
Kringlunni. Ég geri mér far um að þefa uppi bókasöfn. Þau bókasöfn sem
gleymast í upptalningunni bið ég fyrirgefningar með von um vægð. Hver
eru bókasöfnin í lífi þínu?
Samanlagt hafa öll þessi söfn breytt lífi mínu, oft og mörgum sinnum, og
þau gera það enn.
Ég viðurkenni það hér og nú, ég elska bókasöfn. Elska þetta opna rými sem
allir mega valsa um, elska þetta traust þegar ég fæ að taka bækurnar með mér
heim, elska möguleikana, elska fróðleiksþorstann sem bókasöfnin bæði svala
og kynda undir. Það er líka hressandi að mæta fólki í rými þar sem það er
með óbeinum hætti ætlast til að maður þegi, þá kastar maður kveðju lágum
rómi. Bókasöfn eru rými utan um bækur sem hver og ein hefur eigið innra
rými sem lesandinn mætir með sínu líkamlega/andlega holrými og öll rýmin
blandast og hreyfast um leið. Tungumál binda allt saman.
En nú þarf ég að koma mér að efninu, heimsókn á Hagströmer bókasafnið
í Stokkhólmi í mars árið 2017. Ég var um tíma í námi í Uppsala og fólkið í
skólanum benti mér reglulega á þetta tiltekna safn. Þar að auki starfaði einn
kennarinn þar að hluta og bauðst til að sýna mér safnið. Ég tók strætisvagn
til að taka lest til að taka strætisvagn til að komast á safnið sem stendur gul-
málað á jaðri fallegs garðs með tjörn. Hagströmer bókasafnið sérhæfir sig í
textum sem tengjast sögu náttúruvísinda og læknisfræði. Það er óhætt að
kalla það læknisfræðisögusafn eða lækningasögusafn en inn í það fléttast
líka saga efnafræðinnar (Paracelsus), jarðfræðinnar (Athanasius Kircher)
og náttúruvísinda almennt. Vísindasagan birtist þarna í sinni áköfu leit að
skilningi á mannslíkamanum, vessum hans og sjúkdómum einstakra líffæra.
Þar eru bækur eftir hinn sænska Immanuel Swedenborg en einungis þær sem
varða náttúruvísindi á meðan dulspekibækurnar eru annars staðar (veit ekki
hvar og væri gaman að heimsækja það safn), kannski af því að dulspekin er
ekki talin hluti af sögu vísindanna, en ég er ekki viss um að það sé alveg rétt.
Safnið var stofnað árið 1997 til að varðveita söfn gamalla og sjaldgæfra
bóka sem sænska læknafélagið (stofnað 1807) og Karólínska stofnunin
(stofnuð 1810) höfðu haldið utan um allt frá 19. öld. Mestu gersemarnar liggja
í hinu gamla Collegium Medicum (1663–1812) og Karólínska stofnunin tók
við bókum og handritum þess safns árið 1816.
Hagströmer safnið geymir um 40.000 sjaldgæfar og verðmætar bækur
(flestar prentaðar fyrir 1860) sem margar koma úr söfnum frægustu lækna
Svíþjóðar frá 18. og 19. öld. Gjöfin frá Anders Johan Hagströmer (1753–1830)
var sérstaklega rausnarleg og meðal annars þess vegna ber safnið hans nafn.
Hér er ekki heimilt að ráfa um með bakpoka. Hér er haft auga með öllum
mannaferðum og þeim einungis hleypt inn sem eru skráðir gestir eða hafa
sótt um sérstaklega vegna rannsókna sinna. Þessar bækur mega ekki yfirgefa
húsið, ekki undir neinum kringumstæðum. Hér er andardráttur hugmynda-
sögunnar, hér eru vísbendingar um þankagang, þróun, ferli, um tímann áður
en við vissum það sem við vitum í dag.
TMM_3_2018.indd 12 23.8.2018 14:19