Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Qupperneq 16
S v e r r i r N o r l a n d
16 TMM 2018 · 3
Þau burstuðu svekkt í sér tennurnar, seildust eftir bókum af náttborð-
inu, bæði voru steinsofnuð innan tveggja mínútna.
Og vikurnar liðu. Á hverju kvöldi hlustuðu þau á glaðværar raddir
berast inn um gluggann í samneyti við sumarylinn – og nú var sú
stóra stundin runnin upp! Kokteilbarinn! Rómantískt stefnumót! Þau
tvö, þátttakendur í glaumnum! Vinkona þeirra frá París var í heimsókn
yfir helgina, spengilegur bókaútgefandi, og krafðist þess að þau slettu
úr klaufunum meðan hún sæti yfir barninu. Barnið var meira að segja
steinsofnað, sótrjótt og útkeyrt eftir pakkaða dagskrá. Þau höfðu vaknað
um fimmleytið við að stúlkan spangólaði kröfu sína um brjóstamjólk og
síðan ákveðið, að tillögu móðurinnar, að nota frídaginn til að „slappa af“,
sem þýddi þriggja klukkustunda lestarferð út úr New York í lítinn smábæ,
utangátta vafur um listasafn ásamt frönsku vinkonunni og völtu, hand-
óðu barninu, spássitúr um þorpið í þrjátíu stiga hitamollu, aðra þriggja
tíma lestarferð heim þegar barnið var orðið vitstola af þreytu og bræði og
beit þau og klóraði, orgaði, kýldi, öskraði, kúkaði, hrækti.
Nú leiddust þau í þögn niður stigann, önduðu að sér sumarloftinu
(fnyknum úr ruslatunnunni), hikuðu augnablik við inngang barsins og
héldu lotn ingarfull niðri í sér andanum, settust svo við eina lausa borðið
úti við gluggann, þar sem hann hóf leik með því að slá kertið á borð-
inu óvart um koll og hún kafaði stressuð í kokteilaseðilinn og gat ekki
ákveðið sig.
Hvaða kokteil vilt þú? spurði hún áhyggjufull. Æ, bara bjór, sagði
hann. Nei, þú verður að fá þér kokteil, sagði hún. En mig langar frekar
í bjór, sagði hann. Þú færð þér alltaf bjór, sagði hún. Já, mér finnst bjór
góður, sagði hann. Nei, fáðu þér kokteil, sagði hún. Ókei, sagði hann.
Sjálf skipti hún fimm sinnum um skoðun áður en hann fékk grænt ljós
til að panta handa henni eitthvað sem kallaðist Tropical Paradise.
Hann vék sér hikandi yfir að barborðinu og hún beið í sætinu þeirra
úti við gluggann og virkaði öll á nálum. Eftir nokkrar feimnislegar til-
raunir náði hann loks augnsambandi við barþjóninn og bað um Tropi-
cal Paradise og hljómaði eins og hann byggist allt eins við því að bar-
þjónninn myndi þverneita að verða við þeirri ósk hans. Sjálfur lýsti
hann yfir áhuga á einhverju beisku, ekki of sætu. Barþjónninn kinkaði
ábúðarfullur kolli: Ég mæli með Bitter Baron. Frábært, hljómar vel. Ekki
málið! sagði barþjónninn og ræsti húðflúraða handleggi til starfa: hellt
var úr flöskum í löngum sigurboga, ílát hrist og skekin í takt við tón-
listina („Africa“ með Toto), hanastélin tóku á sig litríka, frískandi mynd.
Hann góndi órólegur og lúinn upp í loftið. Nú þegar rómantíkin var
runnin upp – náðugt fríkvöld á barnum – langaði hann helst til að flýja
TMM_3_2018.indd 16 23.8.2018 14:19