Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 60
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
60 TMM 2018 · 3
Hvert er uppáhaldsorðið þitt?
Currie: Currie.
Ég býst við það breytist frá degi til dags. Ég á ekkert uppáhaldsorð lífs
míns.
Hvert er uppáhaldsorðið í dag?
Já, clear-green með bandstriki. Það er vegna þess að um helgina komum
við á bæ nálægt Vík í Mýrdal. Vatnið sem tilheyrir jörðinni var fullkomlega
stillt, þögult og grænt en það var ekki bara grænt, það var: clear-green. Orðið
er ef til vill til á íslensku?
Anne bendir á grænan lit á bókarkápu.
Gæti verið eiturgrænn sem er samt örlítið dekkri. Líklega heitir liturinn á
íslensku heiðgrænn. Og hvaða orð er ekki í uppáhaldi í dag?
Þessi spurning þykir mér erfið. Ekki vegna þess ég geti ekki fundið orð
heldur afþví mér þykir sem við skellum skuldinni fyrir eitthvað sem við sjálf
gerðum á tungumálið.
Já, það er satt. Hvað kætir þig og gleður?
Sund, morgnarnir – ég er alltaf frekar glöð snemma á morgnana. Hitta
vini mína.
Currie: Hún segir það afþví ég er hérna.
Nei, það held ég ekki.
Currie: Og kvartar undan því síðar.
Reglusemi gleður mig og mér þykir gaman að taka til.
Hvað gerir þig dapra?
Mmm, að vera ekki á leiðinni í sund. Sunnudagar: allur dagurinn. Hvað
gerir mig dapra?
Currie: Melankólískar hugsanir kunna að renna í gegnum huga þinn en þú
verður aldrei sérstaklega döpur.
Nei, ég held ekki heldur.
Er eitthvað sem reitir þig sérstaklega til reiði?
Látum okkur sjá. Nei, ég verð ekkert sérstaklega reið heldur. Ætli ég sé til-
finningalaus? Jú, óréttlætið sem maður les um í dagblöðunum gerir mig reiða.
Af hvernig hljóðum hrífstu?
Hljóðum í vatni … Mm, af hvernig hljóðum hrífst ég?
TMM_3_2018.indd 60 23.8.2018 14:19