Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 66
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
66 TMM 2018 · 3
Mhm. Hvað metur þú mest í eigin fari? Hverjar eru dyggðir þínar?
Úff, sjáum til. Já, ég lýk hlutum á réttum tíma – það er dyggð mín – það
er mín eina dyggð.
Hvað metur þú minnst í eigin fari? Hverjir eru lestir þínir?
Mmm –
Currie: Þú hefur enga.
Jú, jú. Net annmarkanna flýtur á botninum. Já, ég gæti sagt: níska! Ég held
ég sé nísk.
Currie: Einsog ef þér verður orðavant þá steinþagnarðu?
Já, ég held ég sé nísk á vettvangi orðanna og tilfinningalega og efnislega.
Þau hlæja.
Stundarðu líkamsrækt?
Já, á hverjum degi fer ég annað hvort í sund eða spinning.
Finnst þér gaman að syngja – syngurðu?
Nei, ég er hræðilegur söngvari.
Currie: En þér finnst gaman að syngja.
Ég flauta. Ekki mjög vel.
En syngurðu í hljóði innra með þér?
Já, á meðan ég syndi syng ég af einhverjum ástæðum alltaf Tea for Two.
Lagið hefur sama takt og sundtökin.
Anne syngur: Tea for two …
Leikurðu á hljóðfæri?
Nei, það geri ég ekki.
Og þú teiknar, málar.
Já, stundum, í rispum, ekki stöðugt.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Currie getur sagt það – mér finnst ég aldrei skemmtileg. Jú: að klippa á mér
fingurneglurnar með vinstri hendi á meðan fingurnir skipa sér í fylkingu.
Mm. Hver er hugmynd þín um (fullkomna) hamingju?
Ég veit það ekki, ég geri ráð fyrir að ég sé ekki gefin fyrir fullkomna
hamingju.
TMM_3_2018.indd 66 23.8.2018 14:19