Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 96
B j a r k i B j a r n a s o n
96 TMM 2018 · 3
Bjarki Bjarnason
Tvær örsögur
Kattaskjól og skattaskjól
Fyrst er þar til máls að taka að Oddný Þorgilsdóttir sem fædd var árið
1803 bjó á efri árum á bænum Hraunsnefi í Norðurárdal. Óþurrkasumar
eitt hét hún á kettling sinn sér til fulltingis, skipti það engum togum að
tíðin gjörbreyttist og varð heyfengur með besta móti það árið.
Ástæður veðrabrigðanna spurðust út um gjörvallan Borgarfjörð og
hóf fólk að heita á kött Oddnýjar í stórum stíl, ýmist með skildingum,
smjörbelgjum, ullarsekkjum ellegar fé á fæti. Bændur skuldbundu sig
til að gefa kettinum kind ef bústofn þeirra tórði til næsta vors og konur
lofuðu honum smjörtöflu ef besta mjólkurkýrin yrði ekki fyrir skakka-
föllum. Áður en yfir lauk átti kötturinn 200 kindur sem voru fram-
leigðar til bænda. Leigan var greidd í smjöri sem var selt fyrir handbært
fé og það lánað með drjúgum vöxtum og gildum tryggingum.
Haft var í flimtingum að Oddný leyndi eigum sínum í nafni kattarins
og víst er að kattarskjólið reyndist hið ágætasta skattaskjól því hvergi
var getið um álögur á ferfætlinga. Þessi hringrás verðmæta var sann-
kallaður kattarþvottur og hefur slíkt athæfi í seinni tíð verið kallað pen-
ingaþvætti.
Geistlegum yfirvöldum leist illa á þessa þróun, prestar og héraðspró-
fastur sökuðu Borgfirðinga um hjátrú og skurðgoðadýrkun og lögðu
bann við slíku guðleysi en allt kom fyrir ekki, fólk hélt áfram að heita á
heimilisköttinn á Hraunsnefi, jafnvel til ásta. Ungir piltar á biðilsbux-
unum ákölluðu kisu og einnig stúlkur til að ná ástum yngissveina.
Áður en yfir lauk varð kötturinn svo loðinn um þófana að honum
var settur sérstakur fjárhaldsmaður sem varðveitti auðæfi hans í rósa-
máluðum kistli. Þaðan leitaði fjármagnið út og var hafist handa við fjár-
festingar í nafni kattarins, meðal annars var jörðin Stóra-Gröf í Staf-
holts tungum keypt en hún var metin til 24 hundraða.
En smám saman tók að halla undan fæti í þessum undarlegu fjár-
málaumsvifum. Illa gekk að innheimta leigu fyrir sauðféð og fjár-
hirðirinn var sakaður um að hagnast sjálfur á vörslu peninganna. Vildi
TMM_3_2018.indd 96 23.8.2018 14:19