Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 103
S a m e f l í n g í s l e n s k r a r l i s t a r í 9 0 á r
TMM 2018 · 3 103
… sá maður sem ekki tekur fagnandi allri gagnrýni, en lætur blekkjast af hóli eða
ergist af níði, hann er ekki listamaður og getur ekki orðið það. Ef sjálfsgagnrýni lista-
manns er ekki fullvakandi, þá kemur gagnrýni annarra manna honum vitanlega að
jafnlitlu liði sem hól og níð.
Meðal annarra þátta sem lúta að umsýslu ríkisins um málefni menningar og
lista, og BÍL hefur ályktað um, má nefna stjórnsýslu lista og skapandi greina.
Á seinni árum hefur gætt ríkrar tilhneigingar til að skipta stjórnarmálefnum
milli ráðuneyta við hver ríkisstjórnarskipti og hefur sú skipting ekki alltaf
komið sér vel fyrir listir og menningu. Um þessar mundir er stjórnsýslu
lista- og skapandi greina t.d. skipt niður á fjögur fagráðuneyti auk fjármála-
ráðuneytisins. Það þarf vart að fjölyrða um að viðkvæmur málaflokkur á
borð við listir og menningu geldur fyrir svo dreifða stjórnsýslu. Því hefur BÍL
talið tímabært að stofna sjálfstætt ráðuneyti lista og menningar að norrænni
fyrirmynd. Þær hugmyndir hafa verið ræddar við fulltrúa stjórnmálaflokk-
anna fyrir tvennar Alþingiskosningar en ekki fengið sérstakan hljómgrunn.
BÍL hefur þá lagt til að lágmarki að settur verði á stofn formlegur samráðs-
vettvangur þeirra fimm ráðuneyta sem með núverandi skiptingu stjórnar-
málefna fara með mál tengd listum og menningu. Slíkur vettvangur gæti þá
unnið endanlega aðgerðaáætlun á grundvelli menningarstefnunnar frá 2013,
mögulega með tillögu BÍL að sóknaráætlun til viðmiðunar.
En það sem ég átti við er, ofur einfaldlega, hið innilega samband listamannsins við
þjóðhjartað, þau teingsl sem geri hann ekki aðeins sjáanda heldur og tjáanda hjart-
fólgnustu áhugamála, vona og þrár þess mannlegs samfélags sem vér erum ósundur-
skillegur hluti af …
En sveigjum nú aftur að faglegri úthlutun opinbers fjár. Í samstarfi BÍL við
stjórnmálamenn og embættismenn menningar- og ferðamálasviðs Reykja-
víkurborgar hefur náðst eftirtektarverður árangur varðandi vinnubrögð við
úthlutun fjármuna til sjálfstæðrar lista- og menningarstarfsemi í borginni,
með faghópi listamanna og hönnuða. Sá árangur er ávöxtur árlegra sam-
ráðsfunda stjórnar BÍL og borgarstjóra, setu tveggja áheyrnarfulltrúa BÍL í
menningar- og ferðamálaráði og samstarfssamnings sem endurnýjaður er á
þriggja ára fresti. Menningarstefna Reykjavíkur er grundvöllur samstarfsins
og aðgerðaáætlun á grundvelli hennar hryggjarsúlan. Sú áætlun er endur-
skoðuð árlega þar sem allir sitja saman við borðið, kjörnir fulltrúar í ráðinu,
embættismenn og fulltrúar listamanna. Aðferðafræði borgarinnar í þessum
efnum hefur verið til fyrirmyndar og vonandi að landshlutasamtök sveitar-
félaga taki hana sér til eftirbreytni fyrr en seinna, því stjórnsýsla lista og
menningar á landsbyggðinni þarfnast umbóta. Sú staðreynd helgast ekki síst
af þeim breytingum sem ríkisvaldið hefur gert á stuðningi sínum við lands-
hlutasamtökin þegar ákveðið var að sveigja af markaðri braut sóknaráætlana
landshlutanna og sameina menningarsamninga vaxtarsamningum í nýjum
uppbyggingarsamningum. Þannig var drepið á dreif þekkingu menningar-
TMM_3_2018.indd 103 23.8.2018 14:19