Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 108
H u g v e k j u r 108 TMM 2018 · 3 Fyrir bragðið erum við enn á því stigi, að 10% af starfsorku þjóðarinnar fer í landbúnað, meðan auðþjóðir heims leggja aðeins 2,5% starfsorku sinnar í landbúnað og með meiri árangri. Þetta kerfi hlýtur að leiða til offramleiðslu á rándýrum afurðum og gerir það. Til þess að gera sem mest af þessari lúxusvöru seljanlega á innlendum markaði er ríkissjóður látinn greiða niður mikilvægustu og viðkvæmustu afurðirnar. Þær afurðir, sem enn eru afgangs, þrátt fyrir niðurgreiðslurnar, eru svo gefnar til útlanda á kostnað ríkisins. Nefnist sú hagsnilld útflutningsuppbætur. Þetta undursamlega fyrirgreiðslukerfi mundi samt ekki virka, ef ekki væri bannað að flytja inn þær landbúnaðarafurðir, sem gætu keppt við íslenzkar afurðir. Landbúnaðurinn er þannig tryggður í bak og fyrir, í fyrsta lagi með fjármagnsforgangi, í öðru lagi með óhemjulegum greiðslum af almannafé og í þriðja lagi með því að banna neytendum að fá ódýrari vörur frá öðrum löndum. Aðeins sá hluti fyrirgreiðslukerfisins, sem varðar fé skattgreiðenda, kostar landsmenn um sjö þúsund milljónir króna á þessu ári. Þar af fara 1000 milljónir í útflutningsuppbætur, 700 milljónir í ýmsa beina styrki, 500 milljónir í óbein framlög til eflingar landbúnaðar, 800 milljónir í áburðarniðurgreiðslu og 4000 milljónir í niðurgreiðslu á afurðum landbúnaðarins. Þetta hrikalega ástand, sem á sér enga hliðstæðu í þróuðum ríkjum, ber vott um, að þrýstihópur landbúnaðarins er öflugasti þrýstihópur landsins. Vald hans er svo mikið, að alþingi og stjórnvöld eru nánast aðeins afgreiðslustofnanir, þegar landbúnaðarmál ber á góma. — JK Minningarorð Sveins R. Eyjólfssonar Áhugasamir um hin sögulegu átök á Vísi geta fengið nánari upplýsingar um þau í bókinni Allt kann sá er bíða kann – æsku og athafnasögu Sveins R. Eyj- ólfssonar blaðaútgefanda sem kom út fyrir síðustu jól. Við útför Jónasar Krist- jánssonar, sem fór fram í Gamla bíói 12. júlí sl. á vegum Siðmenntar, voru flutt minningarorð um hann eftir Svein, félaga hans til áratuga, sem alveg óvænt leggur áherslu á allt aðrar hliðar á Jónasi en hér hafa verið nefndar. Eins og lesa má hér á eftir var maðurinn ekki ein- hamur: Félagi minn í leik og starfi í tæp 60 ár, Jónas Kristjánsson ritstjóri, er allur. Við supum marga fjöruna saman á löngum tíma. Kynntumst við sumarstörf í virkj- unum við Sogið 1959, en hófum samstarf við blaðaútgáfu á fyrri hluta árs 1968. Þá gekk ég til liðs við Vísi sem fram- kvæmdastjóri að áeggjan Jónasar, sem þá hafði ritstýrt blaðinu um nokkurn tíma. Sú saga öll hefur verið sögð á öðrum stað. Jónas Kristjánsson var um margt óvenjulegur maður. Hann gekk til allra verkefna sinna af ástríðufullri atorku. Hefði í rauninni orðið í fremstu röð á hvaða sviði sem hann hefði kosið að hasla sér völl á, hvort sem var í hugvísindum eða raunvísindum. Af slíkri nákvæmni sinnti hann öllum sínum verkefnum. Mér eru nokkur þeirra minnisstæð. Fyrst er að nefna golfið. Það er ekki á margra vitorði að Jónas tók að leika golf á fyrstu samstarfsárum okkar. Hann gekk til þessarar íþróttar af miklum krafti og fór jafnvel í golf uppúr kl. 6 á morgnana og hafði leikið nokkra hringi áður en hann fór til vinnu sinnar á blaðinu; þar var hann ævinlega mættur fyrir kl. 8 á morgnana, fyrstur manna. Golfástríðan og þekking Jónasar á íþróttinni var orðin svo mikil að sú spurning hvarflaði að mér um tíma hvort Jónas Kristjánsson hefði ekki örugglega fundið upp golfíþróttina. En að nokkrum tíma liðnum sögðu fætur hans hingað og ekki lengra, voru ekki viðbúnir þessu óvænta og óundirbúna álagi. Setti Jónas þá golfsettið inn í geymslu og tók til við önnur áhugamál. TMM_3_2018.indd 108 23.8.2018 14:19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.