Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 127
U m s a g n i r u m b æ k u r TMM 2018 · 3 127 persónan þarf sífellt að sanna fyrir Steinu og Olgu að hún hafi „réttar“ skoðanir og áhugamál og að lokum er hún útilokuð, þó líklega ekki sökum þess að hún svaraði spurningunni „Smartís eða M&M?“ rangt heldur fremur vegna þess að hún varð vitni að viðkvæmum fjölskylduaðstæðum sem ekki þoldu dagsins ljós. Samband aðalpersónunnar og Hildar er hryggjarstykki bókarinnar þótt ekki sé fjallað um það ítarlega eða á mörgum síðum. Aðalpersónan yfirgefur Hildi og hættir að tala við hana þegar hún verður hluti af teyminu „Steina og Olga“ en heimsækir hana aftur síðar þegar hún er orðin ein á báti. Hún tekur rútu upp í sveit þar sem Hildur eyðir sumrinu hjá ömmu sinni og þar fer fram uppgjör á milli þeirra þar sem særindi Hildar og skömm aðalpersónunnar yfir framkomu sinni koma fram. Heimsóknin til Hildar er ris skáld- sögunnar og hápunktur uppgjörs aðal- persónunnar við grunnskólalífið sem hún er að segja skilið við. Inn í kaflann er auk þess fléttað óvæntum og grimmi- legum atburði sem ýkir dramatík hans og áhrif. Þessi atburður, sem ekki verður rakinn hér í smáatriðum til að eyði- leggja ekki lesturinn fyrir þeim sem enn eiga hann eftir, hefur ótvíræð „sjokk- áhrif“; lesandanum bregður og hann spyr sig hvað hafi gerst og af hverju – var þetta nauðsynlegt? Hann þjónar þeim tilgangi að undirstrika uppgjör vinkvennanna en hann dregur einnig upp sterkar andstæður milli stúlknanna og um leið milli sveitar og borgar. Sveit- in stendur uppi sem heimur grimmdar, dauða og ástar, á meðan borgin er sið- væddari en um leið bældari að því leyti að þar er grimmdin vissulega til staðar en tjáð með orðum fremur en gjörðum. Sveitin er að sama skapi framandgerð; aðalpersónan dvelur þar aðeins dagpart og leitar strax til baka í „sinn“ heim, sem er Háteigshverfið, en framtíð Hildar og örlög hennar eru óráðin. Eitt af helstu höfundareinkennum Gerðar Kristnýjar er meitlaður og fynd- inn stíll og Smartís er þar engin undan- tekning. Þetta er grípandi og skemmti- leg skáldsaga sem rennur ljúflega í gegn og nostalgíufiðringur níunda áratugar- ins er heillandi og vandræðalegur í senn. Umfjöllun um alvarlegri málefni – geðrænan vanda og áfengisvandamál í fjölskyldum og áhrif þessa á börn og unglinga – fær þó einnig sinn sess; hún tengir ólíka kafla saman, myndar sterk- an þráð í gegnum skáldsöguna og er tví- mælalaust einn áhrifamesti þáttur hennar. Annað gegnumgangandi þema er yfirskilvitleg málefni og óljós mörk milli þessa heims og annars; aðalper- sónan skynjar ýmislegt sem ekki er víst hvort aðrir verði varir við og lesandan- um er látið eftir að ráða í hvað tilheyrir raunheimi og hvað ekki. Við þetta skap- ast ókennilegt andrúmsloft, sem lesend- ur skáldsagna Gerðar hafa upplifað áður – til dæmis í Hestvík (2016) – og eru lík- lega farnir að gera ráð fyrir að sjá í næstu bókum hennar. Mögulega hefði mátt bæta meira kjöti á beinin, fylla upp í ýmsar eyður og skapa þannig sterkari heildarmynd og þroskasögu en einnig leitar á mig sú spurning hvort Smartís hefði virkað betur sem smásagnasafn, þar sem svip- myndirnar sem hún samanstendur af eru margar hverjar sterkar og lifa sjálf- stæðu lífi. Hvað sem því líður er hér um að ræða áhugaverða bók sem veltir upp ýmsum hliðum á lífi ungs fólks. Aðal- persónan gengur í gegnum ólík tímabil vináttu og einsemdar, gleði og óöryggis, en í sögulok eru bjartari tímar í vænd- um; framhaldsskólaárin, ný vinátta, nýr skóli og nýtt æviskeið. Allt eru þetta TMM_3_2018.indd 127 23.8.2018 14:19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.