Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Side 36

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Side 36
VIð BJUggUM þAð TIl SJálF 35 Íslenskt táknmál verður til áður höfðu kennarar notað fingrastafróf í kennslustundum og það hafði fyrst og fremst verið byggingarefni fyrir málið en nú var það bannað. Ben Bahan telur að öll táknmál byrji með látbragði og bendir á að alls staðar í heiminum verði sama ferlið þegar heyrnarlausir koma saman og hittast. látbragð verði að byrjandi táknmáli og eftir nokkrar kynslóðir sé það orðið venjubundið táknmál.106 Með því að banna fingrastafrófið var í rauninni dregið úr áhrifum íslensku og heyrandi fólks á málþróunina. „það var eng- inn sem kenndi okkur táknmálið, við bjuggum það til sjálf,“ sagði Sigurborg Skjaldberg (Sirrý). Allir viðmælendurnir, sem voru í skólanum eftir að fing- rastafróf og táknmál var bannað, sögðust hafa lært mest í frímínútunum. þá notuðu börnin sitt mál, sem byrjaði að þróast á meðal þeirra úr látbragði, bendingum og svipbrigðum. Tungumálið spratt upp úr athöfnum barnanna innan ramma skólans og utan og þróaðist framan af í heimavistinni og á leikvellinum utan kennslustundanna, án áhrifa frá íslensku og án vitundar og viðurkenningar heyrandi fólks. Málið var bundið aðstæðum sínum og náði til þess veruleika sem börnin lifðu í og sameiginlegrar upplifunar þeirra.107 það var ekki bara hlutlaus miðill til samskipta heldur var þrungið félagslega samhenginu þar sem táknin höfðu lifnað og endurspeglaði valdastöðuna sem samfélögin voru í. Táknið heyrandi fékk dýpri merkingu en það að heyra. Í tákninu fólst líka merkingin þeir sem ráða, þeir sem vita, þeir sem skilja ekki. Sigurborg Skjaldberg lýsti málinu sem „grófu“ og tók dæmi af því þegar sagt var hoppa, þá var hoppað. stígvél voru táknuð eins og eftirherma af því að klæða sig í stígvél og mjólk var táknuð með því að herma eftir því að mjólka kú. Táknið mamma átti uppruna sinn í talþjálfuninni hjá Brandi en það var gert með því að ýta tvisvar með vísifingri á nefið á sama staðinn og þau áttu að nema röddun bókstafanna. Hún sagði að það hefði ekki verið „næmni“ í táknunum hjá þeim en nýtt mál var tekið að þróast. Hreinn guðmundsson og Sirrý rifjuðu upp bíóferðir sínar þegar þau voru í skólanum. þau sögðust hafa stillt sér upp fyrir framan dyravörðinn í bíóinu og bent á eyrun á sér. Hann hefði þá hleypt þeim inn án þess að þau þyrftu að borga. þegar þau komu heim af bíóinu endursögðu þau myndina fyrir hina krakkana með látbragði, bendingum og svipbrigðum. Í táknmálum er búið til svið í táknrýminu fyrir framan táknarann þar sem hlutum og persónum er raðað og þær látnar hreyfast og eiga samskipti. 106 Ben Bahan, „Senses and Culture. Exploring Sensory Orientations“, bls. 234. 107 Sbr. Mikhail Bakhtin, The Dialogic Imagination, bls. 293.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.