Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 2
Minnzt látins velunnara.
Við fráfall Jóns H. Guðmunds-
sonar, ritstjóra Vikunnar, hefur
Úrval misst velunnara, sem lagt
hefur því lið á margan hátt frá
upphafi.
Hann var með í ráðum þegar
Úrval var stofnað og naut það
mikils góðs af reynslu hans sem
prentara og ritstjóra. Nafn sitt
á það einnig honum að þakka.
En fyrst og fremst naut það góðs
af öruggmn og óspilltum smekk
hans fyrir íslenzku máli. Jón las
prófarkir af Úrvali frá upphafi
og allt þar til hann lagðist bana-
leguna, seint á liðnu ári.
Prófarkalestur er vandasamt
verk og ekki á margra færi að
leysa hann vel af hendi, eins og
alltof margar íslenzkar bækur og
blöð bera því miður Ijóst vitni um.
1 bréfum, sem Úrvali hafa borizt
frá lesendum, hefur þess mjög
víða verið getið, að prófarkalest-
ur á Úrvali væri til fyrirmyndar.
Jón gladdist yfir þessari viður-
kenningu lesendanna, því að ekk-
ert gramdist honum meira þegar
hann las íslenzkan bækur en þegar
hann uppgötvaði að kastað hafði
verið höndum til prófarkalesturs-
ins, og líkti hann þvi við óþrif,
sem öllum hlutaðeigandi væru til
skammar. Jafnnæmur var hann
fyrir því ef hann rakst á ambögu-
legt eða óíslenzkulegt orðfar í
þýddri bók, og hafði hann oft orð
á því, að þetta ofnæmi sitt, sem
hann kallaði svo, fyrir prentvill-
um og útlenzkulegu málfari spillti
tíðum fyrir sér allri ánægju af
lestri bóka, sem að öðru leyti væru
góðar.
Þetta „ofnæmi" Jóns varð Úr-
vali til mikils góðs, ekki aðeins
í baráttunni við prentvillupúkann,
heldur einnig í baráttunni við út-
lenzkulega orðaskipan, sem mjög
er áleitin í þýddu máli. Margt
þesskonar illgresi upprætti Jón við
prófarkalesturinn, og stendur Úr-
val í mikilli þakkarskuld við hann
fyrir það málvöndunarstarf hans.
Hvernig nú skipast um þau mál
eftir fráfall Jóns er óvíst, en von
er til að andi Jóns svífi áfram
yfir vötnunum, þvi að lengi býr
að fyrstu gerð, og Úrval hefur
fullan hug á að slaka ekki á þeim
kröfum við sjálft sig, sem Jón
gerði alla tið til þess; það getur
ekki heiðrað minningu hans betur
með öðru móti.
tJRVAL tímaritsgreina i samþjöppuðu formi.
Ritstjóri GIsli ÓLafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Afgreiðsla Tjamar
götu 4, Pósthólf 365. Fæst hjá bóksölum um land allt.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPRENTH.F.