Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 18
16
■orval
að gera mannkynið að þrælum
sé rakin leið til 3. heimsstyrj-
aldarinnar, 2) að hvetja ,,með
sterkri raust“ til skynsemi og
skilnings milli austurs og vest-
urs, og 3) að sýna fram á, að
,,ef stríðið sem við óskum ekki
eftir verður neytt upp á okkur
getum við ekki komizt hjá að
sigra.“ Það er ekki hægt að
loka augunum fyrir staðreynd-
um sögunnar, segir Colliers.
Harðstjórum, allt frá Djengis
Khan til Adolfs Hitler, hefur
verið steypt af stóli, ýmist með
uppreistum hinna kúguðu eða
með hjálp annarra ríkja. Stal-
in verður að lyfta járntjaldinu
eða hefja styrjöld og þá verður
það skotið niður.
Forustugreinin, sem nefnist
.,Þriðja heimsstyrjöldin“, er eft-
ir Robert E. Sherwood, sem var
ráðgjafi Roosevelts og hefur
þrisvar fengið Pulitzer bók-
menntaverðlaunin. Sherwood
var í fimm mánuði að viða að
sér gögnum bæði í Evrópu og
Ameríku, og lagði að því loknu
fram handrit, „sem átti að fá
lesandann til að hugsa: Guð
minn góður! Þetta er rétt! Þetta
er einmitt það sem skeð getur!“
Hernaðarritstjóri New York
Times, Hanson Baldwin, tók að
sér að rekja einstök herfræði-
leg atriði stríðsins 1952—55, en
nokkrum stærstu viðburðum
stríðsins lýsa víðkunnir blaða-
menn sem sjónarvottar. Aðrir
blaðamenn og rithöfundar full-
komna síðan myndina með lýs-
ingum á uppbyggingunni eftir
stríðið, verður það nánar rakið
síðar.
Robert Sherwood er staddur
í Moskva árið 1960 þegar hann
skrifar grein sína. Hún er árang-
ur af tilraun sagnfræðinefndar
til að lýsa 3. heimsstyrjöldinni
í stórum dráttum. Styrjöldin
byrjar klukkan 1:58 eftir Green-
wichtíma, laugardaginn 10. maí
1952, þegar Títo marskálkur
veitir móttöku 120 bændum frá
Serbíu, er hylla hann sem „hina
litlu, hvítu fjólu vora“. 1 hópi
bændanna eru tveir dulbúnir
sendimenn frá rússnesku leyni-
lögreglunni með stóra vindla í
munninum. Vindlarnir eru raun-
ar sprengjur, en vegna árvekni
lífvarðarins mistekst banatil-
ræðið við Tito, tilræðismennirnir
eru skotnir og Tito gefur skipun
um læknishjálp til handa hinum
særðu.
Orðrómurinn flýgur samt
eins og fiskisaga: „Tito hefur
verið myrtur! er hrópað um all-
ar götur Belgrad og fréttin
flýgur samstundis um allt land-
ið. Þaulæfðir rússneskir
skemmdarverkamenn taka til
starfa. Útvarpsstöðvarnar eru
gerðar óvirkar, lögreglan og
herinn reyna árangurslaust að
halda uppi reglu. Þegar Tito
tekst loks að ná eyrum fólksins
um útvarpsstöð er það orðið
of seint. Moskvuútvarpið til-
kynnir að sveitir frá Ungverja-
landi, Búlgaríu og Albaníu séu
komnar yfir landamærin fyrir