Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 83

Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 83
SYND og veruleiki 81 væru frænka hennar og ein eða tvær stúlkur úr tízkuverzluninni. Þingmaðurinn hafði aldrei á ævinni verið jafnhamingjusam- ur. Það var honum ánægjuefni að hugsa til þess að jafnvel hér í heimi skuli góðverk hljóta um- bun, því að hafði hann ekki af einskærri góðmennsku farið með konu sinni á tízkusýninguna kvöldið sem skuldirnar við Bandaríkin voru til umræðu í öldungadeildinni og hann sá Lis- ette í fyrsta skipti? Því betur sem hann kynntist henni, því heitari varð ást hans. Hún var yndislegur félagi. Hún var kát og vingjarnleg. Gáfur hennar voru í góðu meðallagi og hún gat hlustað greindarlega þegar hann ræddi um viðskiptamál eða landsmál við hana. Hann fann hvíld hjá henni þegar hann var þreyttur og hún kom honum í gott skap, þegar hann var leið- ur. Hún fagnaði honum þegar hann kom, og hann kom oft, venjulega milli klukkan fimm og sjö og hún saknaði hans þegar hann fór. Hún lét hann finna, að hann væri ekki aðeins elsk- hugi hennar heldur einnig vinur. Stundum snæddu þau saman kvöldverð í íbúð hennar, og ljúf- feng máltíðin og notaleg heim- ilishlýjan kenndu honum að meta unað heimilislífsins. Vinir hans sögðu honum að hann hefði yngzt um 20 ár í útliti, og honum fannst það sjálfum. Hann vissi vel hve lánsamur hann var. En honum fannst að hann hefði unnið til þess eftir að hafa lifað grandvöru lífi og þjónað landi sínu dyggilega. Það var því mikið áfall fyrir hann, eftir að allt hafði gengið að óskum í nærri tvö ár, þegar hann kom til Parísar einn sunnu- dagsmorgun úr kjördæmi sínu. Hann hafði ætlað að dvelja þar um helgina, en áætlunin hafði breytzt. Og af því að þetta var á sunnudagsmorgni, fór hann rakleitt til Lisette og bjóst við að koma að henni í rúminu. En hún sat þá að morgunverði í svefnherbergi sínu ásamt ung- um manni sem hann hafði aldrei séð fyrr, og var hann í spánnýj- um náttfötum þingmannsins. Lisette varð undrandi að sjá hann. Það mátti jafnvel merkja að henni var brugðið. „Tiens,“ sagði hún. „Hvaðan ber þig að? Eg bjóst ekki við þér fyrr en á morgun.“ „Stjórnin er fallin,“ sagði hann utan við sig. „Mér voru gerð boð. Mér er boðin innan- ríkisráðherrastaðan.“ En þetta var alls ekki það sem hann ætlaði að segja. Hann leit heiftarlega á unga manninn í náttfötunum sínum (þ. e. þingmannsins). „Hver er þessi ungi maður?“ hrópaði hann. Á rauðum vörum Lisette kviknaði töfrandi bros. „Elskhugi minn,“ sagði hún. „Heldurðu að ég sé fífl?“ hrópaði þingmaðurinn. „Ég veit hann er elskhugi þinn.“ „Af hverju spurðirðu þá?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.