Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 30
Indíánadrengurinn kynnist aldrei
refsandi hönd, samt Iærir hann
snemma sjálfsaga.
Það sem Sioux indíánarnir kenndu mér.
Grein úr ,,Empire“,
eftir Mari Sandoz.
EGAR ég les frásagnir af
glæpum og ofbeldi í blöðun-
iim verður mér hugsað til Sioux
og Cheyenne indíánanna og
hvernig þeir ala upp börn sín.
Við getum margt lært af þeim,
ef við viljum ala börn okkar
upp til að lifa frjálsu, gagnlegu
lífi.
Ég ólst upp nálægt heim-
kynnum Sioux indíánanna við
Pine Ridge í Suðurdakóta. For-
eldrar mínir voru jafnan önnum
kafin við landbúnaðarstörf, og
af því að ég var elzt af sex
systkinum féll það í minn hlut
að gæta þeirra yngri.
Einn sumarmorgunn þegar
ég var átta ára kom ein leik-
systir mín úr indíánabúðunum
hinum megin við veginn að
eldhúsdyrunum hjá mér og
drap feimnislega á dyr.
„Eg er líka búin að eignast
bróður!“ hvíslaði hún og horfði
á litla bróður minn sem stóð
við hlið mér. „Hann er nýfædd-
ur. Komdu og sjáðu hann!“
Inni í hálfrokknu, reyklituðu
segldúkstjaldi sat indíánakona
álút með nýfætt barn í kjöltu
sinni. Við hávaðann af innkomu
okkar kom skeifa á litla rauð-
brúna andlitið, en þegar fyrsta
gráthrinan brauzt fram yfir
varir barnsins greip móðirin
varlega um nef þess með þumal-
og vísifingri, lagði lófann yfir
munninn og kæfði þannig grát-
inn. Þegar barnið fór að brölta
til þess að fá loft, gaf hún svo-
lítið eftir, en aðeins lítið, og
við fyrsta merki um hljóð lok-
aði hún nefi og munni aftur,
og söng um leið þýtt og blíðlega
vaxtarsöng Cheyenne indíán-
anna, sem á að stuðla að því
að drengurinn verði beinvax-
inn og hraustur á sál og líkama.
Ég vissi þá þegar hversvegna
indíánaleiksystkini mín gáfu
aldrei nema lága kveinstafi frá
sér hversu mikið sem þau
meiddu sig eða fundu til. Amma
hafði sagt mér, að indíánamæð-
ur kæfðu alltaf fyrstu grát-
hljóðin í nýfæddum börnunum
og héldu því áfram meðan nauð-
syn krefði. Þetta var mjög mik-
ilvægt uppeldisatriði á sínum
tíma: engum mátti líðast að
stofna lífi fólksins í hættu: ekk-
ert gráthljóð mátti verða til
þess að vísa óvini leið til tjald-